Útgáfa ljóðabókar og vorsöngur í City miðv 9 mars kl. 18 og 19.30

Sæl verið þið

Vil vekja athygli á tveimur atburðum sem eiga sér stað sama dag hér í Gautaborg og þar sem Íslendingar koma við sögu:

Miðvikudaginn 9 mars kl. 18.00 verður útgáfuhátíð ljóðabókar Kristínar Bjarnadóttur (1948-2021):  

„Den sinnesfriska flickan“ 

Hátíðin fer fram í Lagerhuset, Heurlins plats 1B

Sjá nánar: https://goteborgslitteraturhus.se/event/bokslapp-kristin-bjarnadottir/

Facebook-atburður: https://www.facebook.com/events/455952972931968

Miðvikudaginn 9 mars kl. 19.30 verður ”Vorsöngur í City” í Dómkirkjunni í Gautaborg.

Íslenski kórinn í Gautaborg tekur þátt. Sungið fyrir friði á jörð og samstöðu með fólkinu í Úkraínu.

Sjá nánar:  https://www.svenskakyrkan.se/gbgdomkyrko/nyheter/varsang-i-cityfor-ukraina

Bestu kveðjur, Ágúst

Íslenskt barnastarf og guðsþjónusta í Gautaborg

Sæl verið þið! Það er ánægjulegt að við getum byrjað að hittast á ný eftir langt tímabil með samkomutakmörkunum. 

Í íslenska kirkjustarfinu í Gautaborg er þetta tvennt á dagskrá um helgina:

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 26. febrúar kl. 11.00

Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. 

Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  

Verið velkomin!

Verið velkomin í íslenska guðsþjónustu í Västra Frölunda kirkju sunnudaginn 27. febrúar kl. 14.00.  

Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kórstjórnannast Lisa Fröberg. Prestur er Ágúst Einarsson. 

Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu í safnaðarheimilinu.

Vorstarfið 2022 í Västra Frölunda kirkju í Gautaborg.

Athugið að dagsetningar eru svolítið breyttar frá fyrri áætlun.

Barnasamverur og guðsþjónustur í Gautaborg:

Lau. 12. mars Barnastarf kl. 11.

Lau. 26. mars Barnastarf kl. 11.

Sun. 27. mars Sameiginleg gþj. með Västra Frölunda söfnuði kl. 11.00

Lau. 23. apríl Barnastarf kl. 11.

Mán. 18. apríl Guðsþjónusta kl. 14 í Västra Frölunda kirkju, annan dag páska.

Lau. 7. maí Barnastarf kl. 11.

Sun. 15. maí Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju. 

Aðalfundur kirkjustarfsins eftir guðsþjónustu.

Bestu kveðjur, Ágúst

Ágúst Einarsson er prestur Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð (ÍKS).  Verið velkomin að hafa samband við prestinn í síma: 070 286 39 69. 

Frestum því að hittast!

Sæl verið þið!

Ennþá vofir Kóvít-váin yfir okkur og því hefur sóknarnefndin ákveðið að fresta því að efna til helgihalds í Gautaborg fram í lok febrúar.

Við tökum stöðuna eftir mánuð en ráðgerum eftirfarandi, ef björtustu vonir rætast:

Vetrar- og vorstarfið 2022 í Västra Frölunda kirkju í Gautaborg.

Barnasamverur og guðsþjónustur í Gautaborg:

Lau. 26. febr. Barnastarf kl. 11.

Sun. 27. febr. Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju.

Lau. 12. mars Barnastarf kl. 11.

Lau. 26. mars Barnastarf kl. 11.

Sun. 27. mars Sameiginleg gþj. með Västra Frölunda söfnuði kl. 11.

Lau. 9. apríl Barnastarf kl. 11.

Lau. 23. apríl Barnastarf kl. 11.

Sun. 10. apríl Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju á pálmasunnudegi.

Sun. 15. maí Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju.

Bestu kveðjur, Ágúst

Engin samvera í íslenska barnastarfinu lau. 15. janúar

Sæl verið þið!

Enn á ný eru erfiðir tímar vegna Kóvít-smitsins sem nú gýs upp að nýju, hér í Gautaborg sem og annars staðar.

Við höfum því ákveðið að fresta því að byrja barnastarfið okkar, sem þýðir að því miður að verður engin samvera næstu helgi (lau.15 jan.).  

Við ráðgerum eftir sem áður að hefðbundið safnaðarstarf verði samkvæmt áætluninni hér að neðan. 

Upphaf barnastarfsins verður nánar auglýst síðar, við athugum hvort staðan verður betri eftir 2 vikur. 😉

Vetrar- og vorstarfið 2022 í Västra Frölunda kirkju í Gautaborg.

Yfirlit starfseminnar:

Barnasamverur og guðsþjónustur í Gautaborg:

Lau. 29. jan. Barnastarf kl. 11.

Sun. 30. jan. Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju.

Lau. 12. febr. Barnastarf kl. 11.

Lau. 26. febr. Barnastarf kl. 11.

Sun. 27. febr. Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju.

Lau. 12. mars Barnastarf kl. 11.

Lau. 26. mars Barnastarf kl. 11.

Sun. 27. mars Sameiginleg gþj. með Västra Frölunda söfnuði kl. 11.

Lau. 9. apríl Barnastarf kl. 11.

Lau. 23. apríl Barnastarf kl. 11.

Sun. 10. apríl Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju á pálmasunnudegi.

Sun. 15. maí Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju.

Bestu kveðjur, Ágúst

Gleðilegt nýtt ár! Dagskrá kirkjustarfsins í Gautaborg

Sæl verið þið og gleðilegt nýtt ár!

Því miður verðum við að staðfesta að Jólaballið sem ráðgert var á þrettándanum 6. jan. 2022 – fellur niður vegna Kóvít fjölda-takmarkana. Undanfarin ár hefur jólaballið verið fjölmennt og þéttsetið þannig að ekki er óhætt að efna til slíkrar veislu að þessu sinni.

En við ráðgerum að hefðbundið safnaðarstarf hefjist samkvæmt áætluninni hér að neðan:

Vetrar- og vorstarfið 2022 í Västra Frölunda kirkju í Gautaborg.

Yfirlit starfseminnar:

Barnasamverur og guðsþjónustur í Gautaborg:

Lau. 15. jan. Barnastarf kl. 11.

Lau. 29. jan. Barnastarf kl. 11.

Sun. 30. jan. Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju.

Lau. 12. febr. Barnastarf kl. 11.

Lau. 26. febr. Barnastarf kl. 11.

Sun. 27. febr. Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju.

Lau. 12. mars Barnastarf kl. 11.

Lau. 26. mars Barnastarf kl. 11.

Sun. 27. mars Sameiginleg gþj. með Västra Frölunda söfnuði kl. 11.

Lau. 9. apríl Barnastarf kl. 11.

Lau. 23. apríl Barnastarf kl. 11.

Sun. 10. apríl Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju á pálmasunnudegi.

Sun. 15. maí Guðsþjónusta kl. 14. Í Västra Frölunda kirkju.

Íslenski kórinn í Gautaborg æfir mánudaga kl. 18.30 í safnaðarheimili V-Frölundakirkju. Áhugasamir hafi samband við Kristínu Pálsdóttur s.0702300676.

Bestu kveðjur, Ágúst

Íslenskar jólaguðsþjónustur í Lundi og Gautaborg

Jólahelgistund á Þorláksmessu í Lundi

Jólasamvera verður í S:t Hans kirkju í Norra Fäladen á Þorláksmessu fim. 23. des. kl. 17.00

Hugleiðum boðskap jólahátíðar í tali og tónum á helgistund með allri fjölskyldunni.  

Anna Stefánsdóttir leikur á píanó. Hildur Ylfa og Katrín Una Jónsdætur leika á víólur. Helga og Embla Ásgeirsdætur syngja. Ola Paulsson leikur á saxófón. Örn Arason leikur á gítar. Prestur er Ágúst Einarsson. Verið velkomin!

Hátíðarguðsþjónusta á jóladag í Gautaborg

Jólaguðsþjónusta verður lau. 25. desember kl. 14.00 í Västra Frölundakirkju. 

Íslenski kórinn í Gautaborg leiðir söng. Herbjörn Þórðarson syngur einsöng, Erik Mattisson leikur á trompet og organisti er Lisa Fröberg. Prestur er Ágúst Einarsson. Verið velkomin!

Barnasamvera í Lundi

Íslenskur kirkjuskóli verður í Maria Magdalenakirkjunni laugardaginn 11 desember kl. 10.

Ólafur Jón Magnússon og Kristín Rut Ragnardóttir annast barnastarfið. Söngur, biblíusögur, bænir, leikir og brúðuleikhús verður á dagskrá. Núna verður kirkjuskóli í jólalegri kantinum! Við bjóðum upp á glögg, djús, kaffi og piparkökur og auðvitað skemmtilega samveru.

Staðsetning: Flygelvägen 1, 224 72 Lund

Kontaktupplýsingar. https://www.facebook.com/groups/1785699808359692

Sími: 076-100 41 03 / Netfang: olafurjon.magnusson@svenskakyrkan.se

Verið velkomin!

Barnasamvera og aðventuhátíð á 1. í aðventu

Barna- og fjölskyldusamvera sem verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 27. nóv. kl. 11.00

Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  Verið velkomin!

Aðventuhátíð verður í V-Frölundakirkju sunnudaginn 28. nóv. kl. 14.00. Fjölbreytt aðventudagskrá: Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniel Ralphsson sem einnig syngur einsöng með kórnum.Orgel og píanóleik annast Lisa Fröberg.Einsöng flytur Ólafur Kjartan Sigurðarson. Sönghópur barna í íslenskunámi syngur undir stjórn Krístínar Pálsdóttur. Prestur er Ágúst Einarsson. Kirkjukaffi er eftir stundina í kirkjunni þar sem Íslenski kórinn syngur nokkur lög. Verið velkomin!

Annað sem er framundan á aðventu og jólum:

Julsång í City í Dómkirkjunni Íslenski kórinn í Gautaborg tekur þátt og syngur miðv. 22. des. kl. 17.30.  Ath. nauðsynlegt að mæta tímanlega til að fá sæti.

Hátíðarguðsþjónusta á jóladag 25. des. kl. 14 í Västra Frölunda kirkju. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Herbjörn Þórðarson syngur einsöng. Organisti: Lisa Fröberg

Jólaskemmtun barnanna í safnaðarheimili V-Frölundakirkju. Jólaballið verður á þrettándanumfim. 6. jan. kl. 14. Dansað í kringum jólatréð, íslensku jólalögin sungin og hressir jólasveinar koma í heimsókn. Pálínuboð – þátttakendur koma með veitingar á sameiginlegt borð. Kaffi og safi á staðnum.

Bestu kveðjur, Ágúst

Ágúst Einarsson er prestur Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð (ÍKS).  Verið velkomin að hafa samband við prestinn í síma: 070 286 39 69. 

Íslensk barnasamvera í Lundi

Íslenskur kirkjuskóli verður í Maria Magdalenakirkjunni laugardaginn 27 nóvember kl. 10.

Ólafur Jón Magnússon og Kristín Rut Ragnardóttir annast barnastarfið. Söngur, biblíusögur, bænir, leikir og brúðuleikhús verður á dagskrá.

Staðsetning: Flygelvägen 1, 224 72 Lund

Kontaktupplýsingar. https://www.facebook.com/groups/1785699808359692

Sími: 076-100 41 03 / Netfang: olafurjon.magnusson@svenskakyrkan.se

Næsta samvera þar á eftir er áætluð laugardaginn 11. desember kl. 10

Verið velkomin!

Barnasamvera lau. 13 nóv. kl. 11

Heil og sæl

Barna- og fjölskyldusamvera sem verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 13. nóv. kl. 11.00

Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. 

Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  

Verið velkomin!

Vetrarstarfið í Västra Frölunda kirkju í Gautaborg.

Hér er yfirlit starfseminnar framundan:

Barnasamverur og guðsþjónustur í Gautaborg:

Lau. 13. nóv. Barnastarf kl. 11.

Lau. 27. nóv. Barnastarf kl. 11.

Sun. 28. nóv. Aðventuhátíð kl. 14. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Börn syngja jólalög.

Jóladag 25. des. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.

Þrettándinn 6. jan. 2022.  Jólaball kl. 14. í safnaðarheimilinu. Dansað kringum jólatré og íslenskir jólasveinar koma í heimsókn

Íslenski kórinn í Gautaborg æfir alla mánudaga kl. 18.30 í safnaðarheimili V-Frölundakirkju. Áhugasamir hafi samband við Kristínu Pálsdóttur s.0702300676.

Bestu kveðjur, Ágúst