Fermingarfræðsla Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð
Íslenska kirkjustarfið í Svíþjóð býður upp á fermingarfræðslu nú sem fyrr. Þátttakendur geta komið af öllu landinu. Við hittumst á fermingarmótum í byrjun og lok vetrar. Við bjóðum upp á fræðslusamverur þar sem mögulegt er. Við heyrumst í síma, skrifum tölvupóst og förum í guðsþjónustur nálægt heimilinu, íslenskar eða sænskar.
Skráning í fermingarfræðslu er til 10 september. Áhugasamir eru beðnir að senda póst á kirkjan@telia.com til að fá fyllri upplýsingar og/eða fá skráningarblað sent til baka.
Fermingarmót í október
Fermingarundirbúningurinn hefst með fermingarmóti á Åh Stiftgård helgina 7.-9. okt. 2022. Hópurinn hittist á brautarstöðinni í Gautaborg á föstudegi. Við förum með rútu til Åh stiftgård sem er 70 km fyrir norðan Gautaborg. Komum aftur til Gautaborgar um hádegi á sunnudegi og þaðan taka allir lest eða rútu heim.
Á fermingarmótinu gefst tækifæri til að kynnast og byrja fræðsluna af krafti. Á mótinu samtvinnum við nám, leik og skemmtilega samveru. Þetta fermingarmót er í samvinnu íslenska kirkjustarfsins í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Við reiknum því með fjölmennu móti, 50 unglingum á fermingaraldri og síðan eru leiðtogar, kennarar og prestar sem hafa umsjón með dagskránni.
Fræðsla og kirkjusókn í vetur
Fræðslan heldur áfram eftir fermingarmótið með því að unglingarnir sækja guðsþjónustur í heimabyggð og skila verkefnum með tölvupósti. Fræðslufundir eru í tengslum við íslenskar guðsþjónustur. Einnig er boðið upp á símakennslutíma fyrir þá sem ekki komast í kennslustundir tengdar íslensku helgihaldi.
Fermingarmót í maí 2023
Að vori hittist hópurinn að nýju á sama stað, áætlað vormót er helgina 12 til 14. maí 2023.
Fermingardagar
Það er valfrjálst hvort fermingin fari fram í Svíþjóð eða á Íslandi. Fermingarguðsþjónustur eru yfirleitt í lok maí eða byrjun júní hér Svíþjóð.
Unglingarnir geta fengið leyfi til að fermast fyrr eða í kringum páska 2023 á Íslandi þó fermingarfræðslu sé ekki lokið hér hjá okkur, en skuldbinda sig þá til að koma á seinna fermingarmótið og ljúka kennsluprógramminu.
Skráning stendur yfir
Þeir sem vilja vera með í fermingarfræðslu í vetur þurfa að skrá sig sem fyrst. Vinsamlegast hafið samband á kirkjan@telia.com og biðjið um skráningarblað, einnig er velkomið að leita frekari upplýsinga hjá undirrituðum í síma 070 286 39 69.
Bestu kveðjur, Ágúst Einarsson, prestur Íslendinga í Svíþjóð.