Fjölskylduguðsþjónusta og barnabókasamvera á sunnudag kl. 14 og 15.30

Íslensk fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 28. sept. í Västra Frölunda kirkju kl. 14.00. Guðsþjónustan verður aðlöguð þátttöku bæði barna og fullorðinna. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórinn flytur: ”Drottinn, gerðu hljótt í hjarta mínu” (Lag eftir Andrew Lloyd Webber) og ”Stad í ljus” (Lag eftir: Py Bäckman) Píanóleik og kórstjórn annast Daniel Ralphsson. Prestur er Ágúst Einarsson. 

Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu.

Barnabókasamvera verður kl. 15.30 í safnaðarheimilinu (í Västra Frölunda).

Yrsa Sigurðardóttir barnabókarithöfundur kemur í heimsókn og kynnir bækur sínar. Börn og fullorðnir eru velkomin til að hlusta á hana segja frá. Einnig er hægt að kaupa íslenskar bækur.

Verið velkomin á þessa viðburði!

Bestu kveðjur, Ágúst

P.S.  Speki í dagsins önn:

„Líf er fyrsta gjöfin, ástin er önnur, og skilningur sú þriðja.“ (Marge Piercy)

„Þrennt það mikilvægasta sem stuðlar að hamingju í lífinu: eitthvað að gera, einhver að elska og eitthvað að vonast eftir. (Joseph Addison 1672-1719)

„Maður á aldrei að leita að hamingju, maður hittir hana á leiðinni. (Isabelle Eberhardt 1877-1904)