Þjóðhátíðardagurinn
- júní hátíðahöld í Gautaborg
Útihátíð verður mánudaginn 17. júní kl. 17 (ath tímasetningu) á lóðinni við safnaðarheimili Västra Frölunda kirkju.
Þeir sem vilja geta tekið með sér nestiskörfu og aðstaða er til að grilla, við kyndum grillin. Útlit er fyrir mjög gott veður.
Á dagskrá: Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Lisu Fröberg. Almennur söngur, Ingvar og Júlli spila og syngja, fjallkonan flytur ljóð, Christina ræðismaður flytur ávarp … og leikir og kátína í fögru umhverfi.
Sölubíll frá Grimsis verður á staðnum og selur íslenskan fisk, kjöt og sælgæti.
Verið velkomin!
Hæ, hó og jibbí jei!
Þjóðhátíðarnefndin