Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 24. febrúar kl. 11.00.
Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Íslensk guðsþjónusta verður í Västra Frölundakirkju sunnudaginn 25. febrúar kl. 14.00.
Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kórstjórn Lisa Fröberg. Prestur er Ágúst Einarsson. Barnastund, smábarnahorn.
Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu ásamt aðalsafnaðarfundi, venjuleg aðalfundarstörf.
Spaka hornið
Markvisst eintal til að temja sér jákvæðan hugsunarhátt og efla sjálfstraust gæti litið út svona:
„Það er engin önnur/annar eins og ég
Ég vildi ekki vera nein önnur/neinn annar en ég sjálf/ur
Ég hef hæfileika og marga jákvæða eiginleika. Suma hef ég ekki einu sinni uppgötvað ennþá.
Mér þykir vænt um sjálfa/n mig eins og ég er. Samt vinn ég að því að bæta mig og ég finn árangur á hverjum degi
Ég hef mikið að gefa öðrum
Ég er þakklát/ur fyrir að vera lifandi og fyrir allt það sem lífið hefur upp á að bjóða
Ég legg mitt af mörkum til að gera lífið ánægjulegra fyrir aðra
Ég læt ekki bugast þótt á móti blási
Ég get gert vel þegar ég legg mig fram
Dagurinn í dag verður ánægjulegur.“
Úr bókinni „Leggðu rækt við sjálfan þig“ eftir Önnu Valdimarsdóttur.
Viltu vera með í sóknarnefnd?
Kosið verður í sóknarnefnd á aðalfundi kirkjustarfsins eftir messu sun. 25. febr. n.k. Við óskum eftir samstarfsfólki sem vill vinna með okkur. Yfir vetrartímann hittumst við mánaðarlega til að ræða málin og skipuleggja starfsemina. Á fundum nefndarinnar er ljúffeng súpa og brauð á boðstólnum og margvísleg mál rædd í góðum hópi. Við viljum efla menningarlega starfsemi meðal Íslendinga og fögnum liðsauka í nefndina. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Ágúst prest s. 0702863969 eða Birnu formann s. 0702453717
Dagskráin framundan:
Kaffi og spjall samvera verður miðvikudaginn 28 febrúar kl. 14
í safnaðarheimili V-Frölunda kirkju. Við hittumst og á dagskrá er ”kaffi og spjall”. Umsjón hefur Guðný Ása Sveinsdóttir (gudny.sveinsdottir@bredband2.com eða sími 070 798 04 36)
Ef þú átt lausa stund og vilt hitta aðra Íslendinga er upplagt að koma á þessa samverustund.
Verið velkomin!
Barnastarfið
Framundan:
Lau. 10 mars kl. 11 Kirkjuskóli
Lau. 24 mars kl. 11 Kirkjuskóli
Lau. 14 apríl kl. 11 Kirkjuskóli
Lau. 28 apríl kl. 11 Kirkjuskóli
Guðsþjónustur
Framundan:
Sun 18 mars kl. 11. Guðsþjónusta, sameiginleg með V Frölunda söfnuði
Sun 22 apríl kl. 14. Guðsþjónusta, sendiherra Íslands í heimsókn
Sun 20 maí kl. 14. Guðsþjónusta, ferming, hvítasunnudagur
- júní Útihátíð í Västra Frölunda kl. 14.
Bestu kveðjur, Ágúst
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum.
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.