Samkirkjuleg guðsþjónusta sun. 18. okt. kl. 11 í Þýsku kirkjunni

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 18. október í Þýsku kirkjunni (við Brunnsparken, Norra Hamngatan 16) kl. 11.00 (athugið tímasetninguna) með öðrum erlendum söfnuðum í Gautaborg. Ólík tungumál kristallast í þessari guðsþjónustu. Malin Hammarström predikar á sænsku. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Kórinn flytur: * Ich wollte rufen / I wish my words, *Englar hæstir og  * Hallelúja. Magnus Kjellson leikur á orgel. Altarisganga. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu m.a. íslenskar kleinur.

Verið velkomin

Barnastarf lau. 10 okt kl. 11 og sönghópur íslenskra barna

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 10. október kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin!

Sönghópur íslenskra barna fyrir aðventu

Kristín Pálsdóttir (sem var íslenskukennari barna í Gautaborg) ætlar að standa fyrir söngæfingum fyrir börn, æfa skemmtileg jólalög og koma síðan fram með sönghópinn á aðventuhátíð í Västra Frölunda kirkju. Hér að neðan er orðsending frá Kristínu og bregðist endilega skjótt við::

Bestu foreldrar, ömmur og afar.

Ég er að safna saman söng-glöðum börnum og unglingum sem vilja vara með í sönghóp og æfa fyrir Aðventuhátíð hér í Gautaborg þann 13.desember.

Ætlunin er að hittast og æfa í nokkur skipti, allir fá texta af lögum með sér heim.

Sendið persónuleg skilaboð til mín ef áhugi er og ef þið hafið spurningar.

Kær kveðja Kristín Pálsdóttir 

kristin@palsdottir.se  sími 0702300676 eða á Messenger.

Þetta er framundan í félagsstarfinu:

Barnasamverur auglýstar jafnóðum og fjöldi þeirra eftir áhuga og þátttöku.

Samkirkjuleg guðsþjónusta sun.18 okt. kl. 11 í Þýsku kirkjunni.

Aðventutónleikar Íslenska kórsins í Gautaborg föst. 27 nóv. í Þýsku kirkjunni.

Aðventuhátíð í V-Frölunda sun 13. des kl. 14.

Jólahátíðarguðsþjónusta 2 jóladag 26. des kl. 14 í V-Frölunda.

Speki í dagsins önn.

“Bjartsýnisfólk hefur kannski rangt fyrir sér jafn oft og svartsýnisfólk en það skemmtir sér betur.” Úr vináttubók Francis Gay

“Lifðu hverja árstíð á meðan hún líður, andaðu að þér loftinu, drekktu drykkinn, bragðaðu vöxtinn og gefðu þig á vald áhrifanna.” Henry David Thoreau (1817-1862)

“Hamingjan er byggð á einföldum grunni – ást á fegurð, skopskyn, gjöf góðrar vináttu.“ Úr vináttubók Francis Gay

Með kærri kveðju, Ágúst