Jólahelgistund á Þorláksmessu í Lundi í Svíþjóð

Jólahelgistund verður í S:t Hans kirkju í Norra Fäladen í Lundi á Þorláksmessu mán. 23. des. kl. 17.00.

Hugleiðum boðskap jólahátíðar í tali og tónum á helgistund með allri fjölskyldunni.

Íslenski kórinn í Lundi syngur undir stjórn Ásgeirs Guðjónssonar.

Anna Stefánsdóttir leikur á píanó. Hildur Ylfa og Katrín Una Jónsdætur leika á víólur.

Prestur er Ágúst Einarsson.

Verið velkomin!

Hátíðarguðsþjónusta á jóladag kl. 14 í Gautaborg

Hátíðarguðsþjónusta verður í V. Frölundakirkju á jóladag 25. des. kl. 14.00.

Hátíðartón jólanna. Íslenski kórinn í Gautaborg leiðir söng.

Orgelleik annast Maria Lindqvist-Renman.

Kirkjukaffi.

Prestur Ágúst Einarsson.

Annað framundan:

Jólaskemmtun barnanna í safnaðarheimili V-Frölundakirkju.

Jólaballið verður á þrettándanum mán. 6. jan. kl. 14.

Dansað í kringum jólatréð, íslensku jólalögin sungin og hressir jólasveinar koma í heimsókn.

Pálínuboð – þátttakendur koma með veitingar á sameiginlegt borð.

Kaffi og safi á staðnum.

 

Með ósk um ánægjulegan jólaundirbúning.

 

Bestu kveðjur,  Ágúst

Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se

Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum.

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

 

Guðsþjónusta í Þýsku kirkjunni í Gautaborg sun. 15. des. kl. 11

Sameiginleg guðsþjónusta íslenska og þýska kirkjustarfsins verðurí Þýsku kirkjunni (Norra Hamngatan 16, 411 14 Göteborg)sun. 15. des. kl. 11.00.Guðsþjónustan verður á sænsku, þýsku og íslensku. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Lisu Fröberg. Friðjón Axfjörð (Búi) syngur einsöng með kórnum. Orgelleik annast Dominik Göbel. Prestar eru Christoph Gamer og Ágúst Einarsson. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu.

Verið velkomin!

Dagskráin framundan, dagsetningar og tími.

Þri 17 des. kl. 17.30 „Julsång i City” í Dómkirkjunni, Íslenski kórinn syngur

Miðv. 25 des. Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta í Västra Frölundakirkju kl. 14.00

Mán. 6 jan 2020 Jólaball kl. 14 í safnaðarheimili Västra Frölundakirkju.

Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se

Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.