Fermingarfræðsla Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð
Skráning í fermingarfræðslu fyrir næsta vetur stendur yfir. Áhugasamir eru beðnir að senda póst á kirkjan@telia.com til að fá skráningarblað sent til baka.
Íslenska kirkjustarfið í Svíþjóð býður upp á fermingarfræðslu nú sem fyrr. Þátttakendur geta komið af öllu landinu. Við reynum að brúa fjarlægðir með því að hittast á fermingarmótum og auk þess notum við skype-samtöl og tölvupóst til að vera í tengslum.
Fermingarundirbúningurinn hefst með fermingarmóti á Åh Stiftgård helgina 7.-9. okt. 2016. Hópurinn hittist á brautarstöðinni í Gautaborg á föstudegi. Við förum með rútu til Åh stiftgård sem er 70 km fyrir norðan Gautaborg. Komum aftur til Gautaborgar um hádegi á sunnudegi og þaðan taka allir lest eða rútu heim.
Á fermingarmótinu gefst tækifæri til að kynnast og byrja fræðsluna af krafti. Á mótinu samtvinnum við nám, leik og skemmtilega samveru. Þangað koma einnig unglingar frá Noregi og Danmörku. Undanfarin ár höfum við verið með um 80 unglinga samtals og 20 fullorðna sem hafa umsjón með hópnum.
Fræðslan heldur áfram eftir fermingarmótið með því að unglingarnir sækja guðsþjónustur í heimabyggð og skila verkefnum með tölvupósti. Einnig er boðið upp á skype-kennslutíma fyrir þá sem ekki komast í kennslustundir tengdar íslensku helgihaldi.
Að vori hittist hópurinn að nýju á sama stað, helgina 5 – 7. maí 2017. Það er valfrjálst hvort fermingin fari fram í Svíþjóð eða heima á Íslandi.
Þeir sem vilja vera með í fermingarfræðslu í vetur þurfa að skrá sig sem fyrst eða fyrir 15 september. Vinsamlega hafið samband á kirkjan@telia.com og einnig er velkomið að leita frekari upplýsinga hjá undirrituðum í síma 070 286 39 69.
Bestu kveðjur, Ágúst Einarsson, prestur Íslendinga í Svíþjóð.
P.S. Fyrir þá sem búa í Gautaborg og nágrenni verður kynningarfundur um fermingarfræðsluna sunnudaginn 18. september kl. 12.00 í Safnaðarheimili V.Frölunda kirkju.
Fyrir þá sem búa í Kaupmannahöfn og nágrenni verður kynningarfundur um fermingarfræðsluna sunnudaginn 25. september kl. 12.00 í Húsi Jóns Sigurðssonar.