Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju lau. 25. jan. kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
Íslensk guðsþjónusta verðurí V- Frölundakirkjusun. 26. jan. kl. 14.00. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar sem einnig annast undirleik. Kórinn flytur: ”Gott ár oss gefi“ e. Jón Þorsteinsson og Báru Grímsdóttur og „Næturljóð úr fjörðum“ e. Böðvar Guðmundsson og útsetning Tuula Jóhannesson. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu.
Verið velkomin!
Fræðslufundur með unglingum í fermingarfræðslu fyrir guðsþjónustu kl. 12.15 sama dag.
Bestu kveðjur, Ágúst
Þá er þetta framundan í kirkjustarfinu á vormisseri.
Barnasamverur verða auglýstar jafnóðum og fjöldi samvera fer eftir aðsókn og vilja þátttakenda.
Guðsþjónustur eru ráðgerðar sunnudagana 23. febr. og 23. mars., annan páskadag 21. apríl og sunnudaginn 1. júní.
Speki í dagsins önn:
# Klæddu þig brosi. Ein stærð passar á alla.
# Ef einhver er of þreyttur til að gefa þér bros, gefðu þá eitt af þínum.
# Hamingjan er gjöf sem við höfum öll efni á að gefa.