Sæl öll
Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 2. febrúar kl. 11.00.
Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Börnin fá bók og mynd til að líma inn í hvert skipti sem komið er.
Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
Viltu vera með í sóknarnefnd?
Kosið verður í sóknarnefnd á aðalfundi kirkjustarfsins eftir messu sun. 24. febr. n.k. Við óskum eftir samstarfsfólki sem vill vinna með okkur. Yfir vetrartímann hittumst við mánaðarlega til að ræða málin og skipuleggja kirkjustarfið. Á fundum nefndarinnar eru margvísleg mál rædd í góðum hópi. Við viljum efla menningarlega starfsemi meðal Íslendinga og fögnum liðsauka í nefndina. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Ágúst prest s. 0702863969 eða Birnu formann s. 0702453717
Spaka hornið
Markvisst eintal til að temja sér jákvæðan hugsunarhátt og efla sjálfstraust gæti litið út svona:
„Það er engin önnur/annar eins og ég
Ég vildi ekki vera nein önnur/neinn annar en ég sjálf/ur
Ég hef hæfileika og marga jákvæða eiginleika. Suma hef ég ekki einu sinni uppgötvað ennþá.
Mér þykir vænt um sjálfa/n mig eins og ég er. Samt vinn ég að því að bæta mig og ég finn árangur á hverjum degi
Ég hef mikið að gefa öðrum
Ég er þakklát/ur fyrir að vera lifandi og fyrir allt það sem lífið hefur upp á að bjóða
Ég legg mitt af mörkum til að gera lífið ánægjulegra fyrir aðra
Ég læt ekki bugast þótt á móti blási
Ég get gert vel þegar ég legg mig fram
Dagurinn í dag verður ánægjulegur.“
Úr bókinni „Leggðu rækt við sjálfan þig“ eftir Önnu Valdimarsdóttur.
Bestu kveðjur, Ágúst
Kirkjustarfið á vormisseri:
Lau. 23 febr.Kirkjuskóli
Sun. 24 febr. Guðsþjónusta, aðalfundur
Lau. 9 mars Kirkjuskóli
Lau. 23 mars Kirkjuskóli
Sun. 24 mars Guðsþjónusta með V Frölunda
Lau. 6 apríl Kirkjuskóli
Lau. 27 aprílKirkjuskóli
Sun. 28 apríl Guðsþjónusta
10 til 12 maí Fermingarmót á Ah stiftgard
Lau 8. Júní Ferming í Lundi
Sun. 9 júní Guðsþjónusta Hvítasunnudagur, ferming
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum.
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.