Barnastarfið verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 22. febrúar kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
Verið einnig velkomin í íslenska guðsþjónustu í Gautaborg sem verður í Västra Frölundakirkju sunnudaginn 23. febrúar kl. 14.00 Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kórstjórn annast Lisa Fröberg. Elísabet Einarsdóttir syngur einsöng. Prestur er Ágúst Einarsson. Barnastund, smábarnahorn.
Kirkjukaffi, kaffi og spjall, eftir guðsþjónustu.
Aðalsafnaðarfundur er í kirkjukaffi. Venjuleg aðalfundarstörf.
Bestu kveðjur, Ágúst
P.S.
Dagskrá kirkjustarfsins framundan
Lau. 14 mars Barnastarf
Sun. 22 mars Guðsþjónusta með V Frölundasöfnuði kl. 11.00
Menningardagskrá í kirkjukaffi. Nánar auglýst síðar.
Lau. 28 mars Barnastarf
Lau. 4 apríl Barnastarf
Lau. 25 apríl Barnastarf
Sun. 26 apríl Guðsþjónusta kl. 14
8 til 10 maí Fermingarmót á Ah stiftgard
Sun. 24 maí Guðsþjónusta kl. 14
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.