Íslenskur barnabókarithöfundur Rán Flygenring í heimsókn

Íslenskur barnabókarithöfundur; Rán Flygenring er í heimsókn í Gautaborg.

Rán kemur og les úr bókum sínum og segir frá starfi sínu sem rithöfundur.

Velkomin í safnaðarheimilið í Västra Frölunda fimmtudaginn 31.okt. kl. 16.00 (til kl.17) 

(Frölunda kyrkogata 2, inngangur að neðanverðu) Aðgangur er ókeypis.

Umsjón hefur Kristín Pálsdóttir í samvinnu við Sendiráð Íslands og íslenska kirkjustarfið.

Allir  eru velkomnir!

Einnig er hægt að hitta Rán Flygenring í Konstmuseet miðv. 30.okt kl. 14.30-15.45 og upplifa eldsumbrot í ævintýralegri vinnustöðvasmiðju. Takmarkaður fjöldi barna i Konstmuseet, en skráið ykkur á heimasíðu safnsins: www.goteborgskonstmuseum.se

Barnastarf á laugardag kl. 11 og guðsþjónusta í Þýsku kirkjunni á sunnudag kl. 11

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju lau. 19. okt. kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  

Verið velkomin!

Guðsþjónusta sunnudaginn 20 október í Þýsku kirkjunni (við Brunnsparken) kl. 11.00 (athugið tímsetninguna) með öðrum erlendum söfnuðum í Gautaborg. Ólík tungumál kristallast í þessari guðsþjónustu. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Kórinn flytur: Máríuvers e. Pál Ísólfsson og Smávinir fagrir e Jón Nordal/Jónas Hallgrímsson. Altarisganga. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu.

Verið velkomin

Þá er þetta framundan í kirkjustarfinu á haustmisseri.

Lau 9. nóv. Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimilinu kl. 11.

Lau. 23. nóv. Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimilinu kl. 11.

Sun. 8. des. Aðventuhátíð kl. 14.

Annan dag jóla 26. des. Hátíðarguðsþjónusta kl 14.

Minni líka á:

Island i toner – en jubileumskonsert

Torsdag 7 nov 18.30

Arrangör: Isländska Kören | Island har en rik och levande sångskatt med rötter tillbaka till de första århundradena av bebyggelse på Island.

Island har en rik och levande sångskatt med rötter tillbaka till de första århundradena av bebyggelse på Island. I samband med att Island i år firar 80 år som självständig republik vill den Isländska kören i Göteborg tillsammans med isländska och svenska sångsolister och musiker för en svensk publik presentera ett urval av denna i Sverige relativt okända sångskatt!

Isländska kören i Göteborg kommer även att uppföra nyskrivna stycken med anledning av jubileet!

Medverkande är:

Isländska kören i Göteborg

Daniel Ralphsson, dirigent och tenorsolist vid Göteborgsoperan

Elísabet Einarsdóttir, sopransolist vid Malmöoperan och Det Kongelige Teater i Köpenhamn

Herbjörn Þórðarson, basbaryton vid Göteborgsoperan

Lisa Fröberg, pianist, repetitör och ackompanjatör bl.a. vid Göteborgsoperan

Auður Magnúsdóttir, presentatör; lektor i Nordisk historia vid Göteborgs universitet.

Arrangemanget görs i samarbete med Islands ambassad i Stockholm.

https://www.gso.se/program/konserter/island-i-toner-en-jubileumskonsert/

Bestu kveðjur, Ágúst

Íslenskt barnastarf lau. 5. okt. og prógram um Íslenskar miðaldir á Röhsska safninu 12. okt

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju lau. 5. okt. kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  

Verið velkomin!

Ráðstefnan „Det medeltida Ísland i världen“ á Röhsska safninu (Vasagatan 37-39) verður lau. 12. október kl. 12.30 til 16. Fluttir verða 4 fyrirlestar m. a. um sögu, mannlíf og hannyrðir á þessum tíma.

Hér eru nánari upplýsingar að finna: https://rohsska.se/aktivitet/forelasning-det-medeltida-island-i-varlden/

Þá er þetta framundan í kirkjustarfinu á haustmisseri.

Lau. 19. okt. Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimilinu kl. 11.

Sun. 20 okt. Guðsþjónusta í Þýsku kirkjunni kl. 11.

Lau 9. nóv. Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimilinu kl. 11.

Lau. 23. nóv. Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimilinu kl. 11.

Sun. 8. des. Aðventuhátíð kl. 14.

Annan dag jóla 26. des. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.

Spekiorð vikunnar:

”Eitt blóm í einu. Ég vil heyra hvað þú segir.”  Robert Francis

”Hugsunin verður aldrei rétt nema friður ríki í eigin hugarheimi.”  Seneca  (4.f Kr.- 65 e Kr.)

”Taktu þér dálítinn tíma, þótt það sé aðeins stundarkorn, í garðinum, á listsýningu, á kaffihúsi. Njóttu þess. Láttu blóm og fugla, myndir, tónlist, bækur og góða vini endurnæra þig.”  Pam Brown

Bestu kveðjur, Ágúst