Útihátíð verður haldin sunnudaginn 14. júní frá kl. 13 (ath. dag og tíma) á lóðinni við safnaðarheimili Västra Frölunda kirkju.
Vonandi verður sól úti og allavega sól í sinni. En ef veðrið verður kalt/blautt höfum við aðstöðu fyrir dagskrá inni í safnaðarheimilinu.
Þeir sem vilja geta tekið með sér nestiskörfu og aðstaða er til að grilla, við kyndum grillin.
Dagskrá á sviði hefst kl. 14: Við tökum lagið.Fjallkonan flytur ljóð. Christina Nilroth ræðismaður flytur ávarp.
Leikir, gleði, andlitsmálning og kátína í fögru umhverfi. 🇮🇸🇮🇸🇮🇸🇮🇸🇮🇸
Sölubíll frá Grimsis verður á staðnum frá kl. 13.00 og selur sælgæti. Panta þarf frosinn fisk og lambakjöt fyrirfram (en kryddlegið kjöt er ekki í boði núna). Panta má í síma 033 289095 eða með skilaboðum á order@grimsis.se Hægt að sjá úrvalið á: www.grimsis.se
Þátttökugjald er 100 kr á fjölskyldu eða frjálst framlag. Vinsamlega swishið á: 123 572 45 62
Fyrir þá sem ekki eru með nesti verða grillpylsur, safi/gos, skúffukaka og kaffi/te verður selt á vægu verði.
Verið velkomin!
Hæ, hó jibbí jei og jibbíí jei! 🇮🇸🇮🇸🇮🇸🇮🇸🇮🇸
Þjóðhátíðarnefndin