Íslenskt barnastarf lau. 5. okt. og prógram um Íslenskar miðaldir á Röhsska safninu 12. okt

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju lau. 5. okt. kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  

Verið velkomin!

Ráðstefnan „Det medeltida Ísland i världen“ á Röhsska safninu (Vasagatan 37-39) verður lau. 12. október kl. 12.30 til 16. Fluttir verða 4 fyrirlestar m. a. um sögu, mannlíf og hannyrðir á þessum tíma.

Hér eru nánari upplýsingar að finna: https://rohsska.se/aktivitet/forelasning-det-medeltida-island-i-varlden/

Þá er þetta framundan í kirkjustarfinu á haustmisseri.

Lau. 19. okt. Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimilinu kl. 11.

Sun. 20 okt. Guðsþjónusta í Þýsku kirkjunni kl. 11.

Lau 9. nóv. Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimilinu kl. 11.

Lau. 23. nóv. Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimilinu kl. 11.

Sun. 8. des. Aðventuhátíð kl. 14.

Annan dag jóla 26. des. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.

Spekiorð vikunnar:

”Eitt blóm í einu. Ég vil heyra hvað þú segir.”  Robert Francis

”Hugsunin verður aldrei rétt nema friður ríki í eigin hugarheimi.”  Seneca  (4.f Kr.- 65 e Kr.)

”Taktu þér dálítinn tíma, þótt það sé aðeins stundarkorn, í garðinum, á listsýningu, á kaffihúsi. Njóttu þess. Láttu blóm og fugla, myndir, tónlist, bækur og góða vini endurnæra þig.”  Pam Brown

Bestu kveðjur, Ágúst

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *