Sæl verið þið!
… vek athygli á:
Kjörræðismaður Íslands í Gautaborg tekur á móti kjósendum í safnaðarheimilinu við Västra Frölunda kirkju á Frölunda Kyrkogata 2, Gautaborg á eftirfarandi tímum:
- Laugardaginn 16. nóvember frá klukkan 11:00-14:00.
- Þriðjudaginn 19. nóvember frá klukkan 16:00 til 19:00.
- Fimmtudaginn 21. nóvember frá klukkan 16:30 – 19:30.
Hægt er að hafa samband við Christinu Nilroth, aðalræðismann Íslands í Gautaborg, í síma +46 70 570 40 58 eða meðtölvupósti; christina.nilroth@telia.com.
Sendiráðið vekur sérstaka athygli á eftirfarandi:
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Svíþjóð vegna alþingiskosninga 30. nóvember 2024 hefst þann 7. nóvember.
- Það er á ábyrgð kjósanda að sjá til þess að atkvæðið berist til kjörstjórnar, þar sem viðkomandi er skráður á kjörskrá, í tæka tíð. Þaðer til dæmis hægt að gera með því að senda atkvæðið með pósti eða með því að fela öðrum að koma því til skila.
- Sendiráðið hvetur kjósendur til að gera ráð fyrir hugsanlegum töfum á póstsendingum og senda atkvæði sín tímanlega. Samkvæmtupplýsingum frá Postnord tekur sending almennra bréfa frá Svíþjóð til Íslands að lágmarki 3 til 5 daga og telst sendingardagur þáekki með.
- Kjósendur verða beðnir að gera grein fyrir sér, t.d. með framvísun íslensks skilríkis með kennitölu eða með öðrum hætti semkjörstjóri metur fullnægjandi.
- Kjósendur geta kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá með því að fletta upp kennitölu sinni á heimasíðu Þjóðskrár.
Bestu kveðjur, Ágúst