Íslensk guðsþjónusta sun 1 febrúar í Gautaborg

Íslensk guðsþjónusta verður sunnudaginn 1. febrúar í Västra Frölunda kirkju kl. 14.00. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórinn flytur: “Vänskap“ efter Haydn, texti Ulla Hornborg, og „Dagur er nærri“ eftir Händel, þýðing Kristján Valur Ingólfsson. Píanóleik og kórstjórn annast Daniel Ralphsson. Altarisganga. Prestur er Ágúst Einarsson. 

Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu í safnaðarheimili.

Verið velkomin!

Dagskrá kirkjustarfins framundan:

21. febrúar, laugardagur barnasamvera kl. 11

7. mars, laugardagur barnasamvera kl. 11

8. mars sunnudagur, guðsþjónusta kl. 14

21. mars, laugardagur barnasamvera kl. 11

6. apríl mánudagur 2 í páskum, guðsþjónusta kl. 14

11. apríl, laugardagur barnasamvera kl. 11

24. maí sunnudagur, guðsþjónusta kl. 14

Speki í dagsins önn.

  1. Njóttu alls hins smáa; dag einn kanntu að líta um öxl og sjá að einmitt í því fólst hið stóra og mikla. (Ók)
  2. Enginn sér blóm í raun og veru, það er svo lítið. Við erum svo tímabundin. Það tekur tíma að sjá eins og það tekur tíma að eiga vin. Georgia O´keeffe (1887-1986).
  3. Það sem við leitum sem ákafast að, hér og þar, alltaf ofar og utar, það finnum við loks í sjálfum okkur.  c. m. c.

Með kærri kveðju, Ágúst

Íslenskt barnastarf í Stokkhólmi

Barna- og fjölskyldusamvera verður í Norsku kirkjunni (Stigbergsgatan 24) sunnudaginn 25. janúar kl. 14.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Umsjón hafa Ágúst Einarsson prestur og Bryndís Ásta Magnúsdóttir kórstjóri. Verið velkomin! 

Barnastarf lau. 24. jan kl. 11. í Gautaborg og starfið framundan

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 24. janúar kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin! 

Dagskrá kirkjustarfins framundan:

1. febrúar sunnudag, guðsþjónusta kl. 14

21. febrúar, laugardag barnasamvera kl. 11

7. mars, laugardag barnasamvera kl. 11

8. mars sunnudag, guðsþjónusta kl. 14

21. mars, laugardag barnasamvera kl. 11

6. apríl mánudag 2 í páskum, guðsþjónusta kl. 14

11. apríl, laugardag barnasamvera kl. 11

24. maí sunnudag, guðsþjónusta kl. 14

Íslenskt barnastarf í Stokkhólmi

Gleðilegt nýtt ár!

Barna- og fjölskyldusamvera verður í Norsku kirkjunni (Stigbergsgatan 24) sunnudaginn 11. janúar kl. 14.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Umsjón hafa Ágúst Einarsson prestur og Bryndís Ásta Magnúsdóttir kórstjóri.

Verið velkomin! 

Staðsetningin er nálægt Slussen, 18 mínútna ganga þaðan til:

Norska Sjømannskirken, Kronprinsesse Märthas Kirke

Stigbergsgatan 24, 116 28 Stockholm

Jólaball þriðjudag 6. jan. kl. 14 í Gautaborg

Sæl öll og gleðilegt nýtt ár!

Jólaskemmtun barnanna verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju á þrettándanum þriðjudaginn 6. jan. kl 14.00.  Guðni og Guðbjörg leiða söng og Júlíus leikur á píanóið. Dansað í kringum jólatréð, íslensku jólalögin sungin og hressir jólasveinar koma í heimsókn.

Pálínuboð – þátttakendur koma með veitingar á sameiginlegt borð. 

Kaffi og safi á staðnum. Aðstöðugjald er 80 kr á fjölskyldu, swishnr. 1235724562

Verið velkomin!

Nefndin.

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

Spaka hornið:

”Þegar einhver er of þreyttur til að gefa þér bros, gefðu þá eitt af þínum.” Ók

”Að geta fundið gleði í gleði annarra; það er leyndardómur hamingjunnar.” Georges Bernanos

”Andartakið eigum við öll jafnt.” Markús Árelíus (121-180 e. Kr.)