Íslensk guðsþjónusta verður sunnudaginn 1. febrúar í Västra Frölunda kirkju kl. 14.00. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórinn flytur: “Vänskap“ efter Haydn, texti Ulla Hornborg, og „Dagur er nærri“ eftir Händel, þýðing Kristján Valur Ingólfsson. Píanóleik og kórstjórn annast Daniel Ralphsson. Altarisganga. Prestur er Ágúst Einarsson.
Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu í safnaðarheimili.
Verið velkomin!
Dagskrá kirkjustarfins framundan:
21. febrúar, laugardagur barnasamvera kl. 11
7. mars, laugardagur barnasamvera kl. 11
8. mars sunnudagur, guðsþjónusta kl. 14
21. mars, laugardagur barnasamvera kl. 11
6. apríl mánudagur 2 í páskum, guðsþjónusta kl. 14
11. apríl, laugardagur barnasamvera kl. 11
24. maí sunnudagur, guðsþjónusta kl. 14
Speki í dagsins önn.
- Njóttu alls hins smáa; dag einn kanntu að líta um öxl og sjá að einmitt í því fólst hið stóra og mikla. (Ók)
- Enginn sér blóm í raun og veru, það er svo lítið. Við erum svo tímabundin. Það tekur tíma að sjá eins og það tekur tíma að eiga vin. Georgia O´keeffe (1887-1986).
- Það sem við leitum sem ákafast að, hér og þar, alltaf ofar og utar, það finnum við loks í sjálfum okkur. c. m. c.
Með kærri kveðju, Ágúst