Íslenskt barnastarf í Stokkhólmi

Barna- og fjölskyldusamvera verður í Norsku kirkjunni (Stigbergsgatan 24) sunnudaginn 1. mars kl. 14.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Umsjón hafa Ágúst Einarsson prestur og Bryndís Ásta Magnúsdóttir kórstjóri. Verið velkomin! 

 Staðsetningin er nálægt Slussen, 18 mínútna ganga þaðan til:

Norska Sjømannskirken, Kronprinsesse Märthas Kirke

Stigbergsgatan 24, 116 28 Stockholm

… og einnig stoppar strætó alveg við kirkjuna, einnig eru bílastæði fyrir framan innganginn.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *