Barnasamvera á laugardag kl. 11 og guðsþjónusta á sunnudag kl. 14 í Gautaborg

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 7. mars kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin! 

Íslensk guðsþjónusta verður sunnudaginn 8. mars í Västra Frölunda kirkju kl. 14.00. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórinn flytur: “Næturljóð úr Fjörðum“ Böðvar Guðmundsson, arr Tuula Jóhannesson og „Þýtur í stráum“ ísl þjóðlag, radds Sigurður Rúnar Jónsson. Píanóleik og kórstjórn annast Daniel Ralphsson. Altarisganga. Prestur er Ágúst Einarsson. 

Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu í safnaðarheimili.

Verið velkomin!

Viltu vera með í sóknarnefnd?

Kosið verður í sóknarnefnd á aðalfundi kirkjustarfsins eftir messu annan páskadag mán. 6. apríl n.k. Við óskum eftir samstarfsfólki sem vill vinna með okkur. Yfir vetrartímann hittumst við mánaðarlega til að ræða málin og skipuleggja kirkjustarfið. Á fundum nefndarinnar eru margvísleg mál rædd í góðum hópi. Við viljum efla menningarlega starfsemi meðal Íslendinga og fögnum liðsauka í nefndina.  Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Ágúst prest s. 0702863969 eða Guðna formann s. 0723969070

Dagskrá kirkjustarfins framundan:

Barnasamverur verða auglýstar jafnóðum og fara eftir aðsókn og vilja þátttakenda. 

6. apríl mánudagur 2 í páskum, guðsþjónusta kl. 14  Sönghópurinn King´s Voice keumur í heimsókn og syngur undir stjórn Lisu Fröberg í kirkju og kirkjukaffiAðalfundur

24. maí sunnudagur, guðsþjónusta kl. 14 Ferming

Speki í dagsins önn.

”Stórkostlegasta uppgötvun mannkynsins er það, að maðurinn getur breytt lífi sínu, með því að breyta hugarfari sínu.” W.James

”Mistök eru aðeins tækifæri til að byrja skynsamlega aftur.” Henry Ford

”Mynd skapar þrá. Þú lætur það gerast, sem þú sérð fyrir þér.“ ók

Með kærri kveðju, Ágúst

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *