Barnasamvera í Gautaborg lau. 21. mars

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 21. mars kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin! 

Dagskrá kirkjustarfins framundan:

Barnasamverur verða auglýstar jafnóðum og fara eftir aðsókn og vilja þátttakenda. 

6. apríl mánudagur 2 í páskum, guðsþjónusta kl. 14  Sönghópurinn King´s Voice kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Lisu Fröberg í kirkju og kirkjukaffi. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Aðalfundur kirkjustarfsins.

24. maí sunnudagur, vorhátíðarguðsþjónusta kl. 14

Speki í dagsins önn.

”Allir eiga góða og slæma tíma svo ég ákvað að hafa mína milli góðra og frábærra.”  David Hoogterp

”Þú ert ekki fullklædd/ur fyrr en þú hefur sett upp bros. Evan Esar 

Með kærri kveðju, Ágúst

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *