Barna- og fjölskyldusamvera verður í Norsku kirkjunni (Stigbergsgatan 24) sunnudaginn 22. mars kl. 14.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Umsjón hafa Ágúst Einarsson prestur og Bryndís Ásta Magnúsdóttir kórstjóri.
Verið velkomin!
Staðsetningin er nálægt Slussen, 18 mínútna ganga þaðan til:
Norska Sjømannskirken, Kronprinsesse Märthas Kirke
Stigbergsgatan 24, 116 28 Stockholm
… og einnig stoppar strætó alveg við kirkjuna og bílastæði eru fyrir framan innganginn.