Páskahátíðarstund annan páskadag 6. apríl kl. 14 í Gautaborg

Páskahátíðarstund verður annan páskadag, 6. apríl kl. 14 í Västra Frölunda kirkju. Mikill kórsöngur einkennir hátíðina. Drengjakórinn King´s Voice kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Lisu Fröberg. King´s Voice syngur m.a. ”Mary did you know” og ”Ride the Chariot” Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Kórinn syngur ”Vorið kemur” og ”Sefur sól hjá ægi/Í skógi”. 

Í kirkjukaffi gleður King´s Voice okkur áfram með flutningi á nokkrum lögum. 

Aðalfundur kirkjustarfsins verður að kirkjukaffi loknu.

Dagskrá framundan:

24. maí, sunnudagur, vorhátíðarguðsþjónusta kl. 14

14. júní, sunnudagur, útihátíðarhöld kl. 14. í tilefni 17 júní þjóðhátíðar. 

Nánar auglýst síðar.

Viltu vera með í sóknarnefnd?

Kosið verður í sóknarnefnd á aðalfundi kirkjustarfsins eftir messu annan páskadag mán. 21. apríl n.k. Við óskum eftir samstarfsfólki sem vill vinna með okkur. Yfir vetrartímann hittumst við öðru hvoru til að ræða málin og skipuleggja kirkjustarfið. Á fundum nefndarinnar eru margvísleg mál rædd í góðum hópi yfir málsverði í safnaðarheimilinu.  Við viljum efla menningarlega starfsemi meðal Íslendinga og fögnum liðsauka í nefndina.  Áhugasamir geta haft samband við Ágúst prest s. 0702863969 eða Guðna formann s. 0723969070

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *