Sunnudaginn 15. maí verður Vorhátíðarguðsþjónusta í Västra Frölunda kirkju kl. 14.00. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórstjórn og einsöngur Daniel Ralphsson. Orgelleik annast Lisa Fröberg. Fermd verða: Hekla Katrín Kristensdóttir, Herdís Klara Björnsdóttir og Nökkvi Dagur Eyþórsson. Prestur er Ágúst Einarsson.
Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu í safnaðarheimili, þar sem aðalfundur kirkjustarfsins verður einnig í framhaldi, venjuleg aðalfundarstörf.
Verið velkomin!
Í Västra Frölunda á 17 júní.
Föst. 17. júní kl. 17.00 Hátiðarsamvera útivið í fögru umhverfi við safnarheimilið. Nánar auglýst síðar.
Bestu kveðjur, Ágúst
Ágúst Einarsson er prestur Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð (ÍKS). Verið velkomin að hafa samband við prestinn í síma: 070 286 39 69.
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.