Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 26. október kl. 11.00.
Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.
Börnin fá bók sem heitir: ”Kærleiksbókin mín”.
Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
Dagskráin framundan, dagsetningar og tími, allt nánar auglýst síðar
Lau. 9 nóv. Kirkjuskóli
Sun. 10 nóv. Guðsþjónusta
Lau. 23 nóv. Kirkjuskóli
Fim 28 nóv. Menningar- og fræðslukvöld kl. 19. Nánar auglýst síðar.
Sun. 1 des. Aðventuhátíð
Miðv. 25 des. Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta
Mán. 6 jan 2020 Jólaball kl. 14 -16
Aðrir viðburðir:
Aðventutónleikar Íslenska kórsins í GB miðv 4. des kl. 17.30
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda