Fjölþjóðleg guðsþjónusta verðurí Þýsku kirkjunni (Norra Hamngatan 16, 411 14 Göteborg)sun. 20. okt. kl. 11.00.Erlendir söfnuðir í Gb sameinast um guðsþjónustu einu sinni á ári. Íslenska kirkjustarfið tekur þátt og m. a. syngur Íslenski kórinn í Gautaborg undir stjórn Lisu Fröberg. Kirkjukaffið einnig með íslensku ívafi því Birna kemur með nýbakaðar kleinur að venju. Verið velkomin!
Tónlistarhelgistund verður í Västra Frölunda kirkju sun. 20. okt kl. 18. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Lisu Fröberg og módettukór Västra Frölunda kirkju syngur undir stjórn Mariu Lindqvist Renman. Verið velkomin!
Menningar- og fræðslukvöld
fimmtudaginn 24 október kl 19
í safnaðarheimili Västra Frölunda kirkju.
Efni:
Frá Austurlandi til Gautaborgaróperunnar!
Herbjörn Þjórðarson, óperusöngvari, segir frá lífi sínu og söngferli í tali og tónum.
Stutt kynning:
Herbjörn Þórðarson er fæddur og uppalinn á Íslandi. Hann hefur numið söng meðal annars við Óperustúdió Austurlands og í Piteå í Svíþjóð. Síðustu 11 árin hefur hann sungið í kór Gautaborgaróperunnar. Herbjörn hefur sungið mörg minni einsöngshlutverk á sviði Óperunnar í Gautaborg á þessum árum.
Verið velkomin!
Dagskráin framundan, dagsetningar og tími, allt nánar auglýst síðar
Fim 24 okt Menningar- og fræðslukvöld kl. 19
Lau. 26 okt. Kirkjuskóli
Lau. 9 nóv. Kirkjuskóli
Sun. 10 nóv. Guðsþjónusta
Lau. 23 nóv. Kirkjuskóli
Fim 28 nóv. Menningar- og fræðslukvöld kl. 19
Sun. 1 des. Aðventuhátíð
Miðv. 25 des. Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta
Mán. 6 jan 2020 Jólaball kl. 14 -16
Aðrir viðburðir:
Aðventutónleikar Íslenska kórsins í GB miðv 4. des kl. 17.30
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.