Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 22. apríl kl. 11.00.
Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Öll börn ásamt foreldrum innilega velkomin.
Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Íslensk guðsþjónusta verður í Västra Frölundakirkju sunnudaginn 23. apríl kl. 14.00.
Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgelleik og kórstjórn annast Lisa Fröberg.
Erik Mattisson einleikari hjá Gautaborgaróperunni leikur á trompet.
Barnastund, smábarnahorn. Verið velkomin!
Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu.
# Önnur íslensk guðsþjónusta framundan: Sun. 21 maí kl. 14. Altarisganga.
# 17 júní útihátíð við V-Frölundakirkju. Nánar auglýst síðar.
Spaka hornið:
Fyrsti andardrátturinn
hlýtur að hafa verið innöndun
lífið sagði já við mig
og fyllti líkamann súrefni
Annar andardrátturinn
hlýtur að hafa verið útöndun
ég svaraði með jái á móti
og fyllti lífið með mér
Þannig heldur það áfram
allan tímann
tvö já mætast
og framtíðin fæðist
(e. L. Björklund, lauslega þýtt)
Bestu kveðjur, Ágúst
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum.
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.