Íslenskt barnastarf og guðsþjónusta í Gautaborg 26 sept og 27 sept.

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 26. september kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin! 

Íslensk guðsþjónusta verður sunnudaginn 27. september í Västra Frölunda kirkju kl. 14.00. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórinn flytur: “Brátt mun birtan dofna“ og „Yfir voru ættarlandi”  Píanóleik og kórstjórn annast Daniel Ralphsson. Prestur er Ágúst Einarsson. 

Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu í safnaðarheimili.

Verið velkomin!

Þetta er framundan í félagsstarfinu:

Barnasamverur auglýstar jafnóðum og fjöldi þeirra eftir áhuga og þátttöku.

Samkirkjuleg guðsþjónusta sun.18 okt. kl. 11 í Þýsku kirkjunni

Aðventutónleikar Íslenska kórsins í Gautaborg föst. 27 nóv. í Þýsku kirkjunni.

Aðventuhátíð í V-Frölunda sun 13. des kl. 14.

Jólahátíðarguðsþjónusta 2 jóladag 26. des kl. 14 í V-Frölunda.

Speki í dagsins önn.

”Allir eiga góða og slæma tíma svo ég ákvað að hafa mína milli góðra og frábærra.”  David Hoogterp

”Þú ert ekki fullklædd/ur fyrr en þú hefur sett upp bros.” Evan Esar 

”Að  verða eldri er eins og að klífa fjall, maður verður andstuttur en útsýnið er mikið betra” ók höf.

”Þú getur ekki stjórnað því að eldast, en þú þarft ekki að verða gamall/gömul” George Burns 

Með kærri kveðju, Ágúst