Sæl öll og gleðilegt nýtt ár!
Jólaskemmtun barnanna verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju á þrettándanum þriðjudaginn 6. jan. kl 14.00. Guðni og Guðbjörg leiða söng og Júlíus leikur á píanóið. Dansað í kringum jólatréð, íslensku jólalögin sungin og hressir jólasveinar koma í heimsókn.
Pálínuboð – þátttakendur koma með veitingar á sameiginlegt borð.
Kaffi og safi á staðnum. Aðstöðugjald er 80 kr á fjölskyldu, swishnr. 1235724562
Verið velkomin!
Nefndin.
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.
Spaka hornið:
”Þegar einhver er of þreyttur til að gefa þér bros, gefðu þá eitt af þínum.” Ók
”Að geta fundið gleði í gleði annarra; það er leyndardómur hamingjunnar.” Georges Bernanos
”Andartakið eigum við öll jafnt.” Markús Árelíus (121-180 e. Kr.)