Barna- og fjölskyldusamvera sem verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 27. nóv. kl. 11.00
Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn. Verið velkomin!
Aðventuhátíð verður í V-Frölundakirkju sunnudaginn 28. nóv. kl. 14.00. Fjölbreytt aðventudagskrá: Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniel Ralphsson sem einnig syngur einsöng með kórnum.Orgel og píanóleik annast Lisa Fröberg.Einsöng flytur Ólafur Kjartan Sigurðarson. Sönghópur barna í íslenskunámi syngur undir stjórn Krístínar Pálsdóttur. Prestur er Ágúst Einarsson. Kirkjukaffi er eftir stundina í kirkjunni þar sem Íslenski kórinn syngur nokkur lög. Verið velkomin!
Annað sem er framundan á aðventu og jólum:
Julsång í City í Dómkirkjunni Íslenski kórinn í Gautaborg tekur þátt og syngur miðv. 22. des. kl. 17.30. Ath. nauðsynlegt að mæta tímanlega til að fá sæti.
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag 25. des. kl. 14 í Västra Frölunda kirkju. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Herbjörn Þórðarson syngur einsöng. Organisti: Lisa Fröberg
Jólaskemmtun barnanna í safnaðarheimili V-Frölundakirkju. Jólaballið verður á þrettándanumfim. 6. jan. kl. 14. Dansað í kringum jólatréð, íslensku jólalögin sungin og hressir jólasveinar koma í heimsókn. Pálínuboð – þátttakendur koma með veitingar á sameiginlegt borð. Kaffi og safi á staðnum.
Bestu kveðjur, Ágúst
Ágúst Einarsson er prestur Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð (ÍKS). Verið velkomin að hafa samband við prestinn í síma: 070 286 39 69.