Sæl verið þið
Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 25. mars kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn. Verið velkomin!
Íslensk-sænsk guðsþjónusta verður í Västra Frölunda kirkjusunnudaginn 26. mars kl. 11.00 (ath tímasetninguna). Guðsþjónustan er sameiginleg með V-Frölunda söfnuði. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Kórinn flytur: „Ég vil lofa eina þá“ eftir Báru Grímsdóttur, gamalt helgikvæði og „Vorið kemur“, ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum með lagi eftir Valgeir Guðjónsson.
Orgelleik annast Maria Lindkvist Renman. Prestar eru Ingrid Svenson og Ágúst Einarsson. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu.
Verið velkomin!
Ljóðahornið: Passíusálmar Hallgríms Péturssonar, úr 1 sálmi
Upp, upp mín sál og allt mitt geð
upp mitt hjarta og rómur með,
hugur og tunga hjálpi til.
Herrans pínu ég minnast vil.
Ljúfan Jesúm til lausnar mér
langaði víst að deyja hér
Mig skyldi og lysta að minnast þess
mínum Drottni til þakklætis.
Hvar fær þú glöggvar, sál mín, séð
sanna Guðs ástar hjartageð,
en faðir gæskunnar fékk til mín,
framar en hér í Jesú pín.
Bestu kveðjur, Ágúst
Ágúst Einarsson er prestur Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð (ÍKS). Verið velkomin að hafa samband við prestinn í síma: 070 286 39 69.
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.
Heimasíða: www.kirkjan.se
Styrkir sem íslenska kirkjustarfið hefur notið hafa minnkað verulega.
Þess vegna leitum við til ykkar sem njótið aðstöðu og þjónustu.
Styrktarframlög eru vel þegin inn á:
Söfnunarreikningur íslenska kirkjustarfsins swishnúmer: 123 572 45 62.
Margt lítið gerir eitt stórt.