Vorhátíðarguðsþjónusta
Íslensk guðsþjónusta verður sunnudaginn 1. júní í Västra Frölunda kirkju kl. 14.00. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórinn flytur: Vorið kemur (Jóhannes úr Kötlum) og Söngur Gabríellu (Py Bäckman). Píanóleik, einsöng og kórstjórn annast Daniel Ralphsson. Fermd verða: Birgir Valgeirsson og Elísa Esther Auðunsdóttir. Prestur er Ágúst Einarsson.
Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu í safnaðarheimili.
Verið velkomin!
Hátíðahöld í tilefni 17 júní eru ráðgerð sunnudaginn 15. júní kl. 14.00 á kirkjulóðinni við V. Frölunda kirkju. Athugið nýjan dag og tíma. Þessa tímasetningu er ætlunin að prófa til að koma til móts við barnafjölskyldur og aðra sem eiga e. t. v. auðveldara með að koma um helgi. Nánar auglýst síðar.
Bestu kveðjur, Ágúst