Útihátíð verður haldin sunnudaginn 15. júní kl. 14 (ath. dag og tíma) á lóðinni við safnaðarheimili Västra Frölunda kirkju.
Þessa dagana er veður risjótt, vonandi sól úti, sól inni og sól í sinni. En ef veðrið verður kalt/blautt höfum við aðstöðu fyrir dagskrá og snæðing inni í safnaðarheimilinu.
Þeir sem vilja geta tekið með sér nestiskörfu og aðstaða er til að grilla, við kyndum grillin.
Dagskrá: Júlíus Sigmundsson leikur á píanó og við tökum lagið.Fjallkonan Guðbjörg Jóna Guðnadóttir flytur ljóð. Christina Nilroth ræðismaður flytur ávarp.
Leikir, gleði og kátína í fögru umhverfi. 🇮🇸🇮🇸🇮🇸🇮🇸🇮🇸
Sölubíll frá Grimsis verður á staðnum frá kl. 13.30 og selur íslenskt kjöt og sælgæti. Einnig er hægt að kaupa kryddlegið lambakjöt tilbúið beint á grillið! … eða til að taka með heim og grilla. Öruggast er að panta fyrirfram, sérstaklega fisk og lambakjöt, í síma 033 289095 eða með skilaboðum á order@grimsis.se
Þátttökugjald er frjálst framlag. Pylsur, safi, skúffukaka og kaffi verður selt á vægu verði. Til styrktar í barnastarfi. Vinsamlega swishið á: 123 572 45 62
Verið velkomin!
Hæ, hó jibbí jei og jibbíí jei!
Þjóðhátíðarnefndin