Guðsþjónusta á sunnudag 19. okt. kl. 11.00, barnasönghópur og fl framundan

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 19 október í Þýsku kirkjunni (við Brunnsparken) kl. 11.00(athugið tímasetninguna) með öðrum erlendum söfnuðum í Gautaborg. Ólík tungumál kristallast í þessari guðsþjónustu. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Kórinn flytur: „Heyr himna smiður“ e. Kolbein Tumason/Þorkel Sigurbjörnsson og Smávinir fagrir e. Jón Nordal/Jónas Hallgrímsson. Altarisganga. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu m.a. íslenskar kleinur.

Verið velkomin

Annað framundan:

Íslenskur sönghópur fyrir börn í Gautaborg og nágrenni

Við auglýsum eftir söngglöðum börnum sem vilja syngja íslenska söngva!

Við æfum íslensk jólalög í safnaðarheimili V-Frölunda og finnum góðan æfingatíma.

Æskilegur æfingaaldur er 6 til 12 ára börn. Sönghópurinn ætlar svo að koma fram á aðventuhátíð í V-Frölunda kirkju sunnudaginn 7. desember kl. 14, þar sem m. a Biskup Íslands er gestur. Áhugasamir hafi samband við Kristínu Pálsdóttur á Email: kristin@palsdottir.se eða í síma 0702300676.

Jólatónleikar Íslenska kórsins í Gautaborg föstudaginn 28. nóv. kl. 19.00

Þema tónleikanna er: „Jul så in i Norden“, fjölbreytt úrval jólalaga á öllum tungumálum Norðurlanda. Nánar auglýst síðar.

Aðventuhátíð íslenska kirkjustarfsins verður í V-Fröunda kirkju sunnudaginn 7 desember kl. 14.00.Fjölbreytt aðventudagskrá. M.a. syngur Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Meðal gesta er Guðrún Karls Helgudóttir, Biskup Íslands. Nánar auglýst síðar.

Hátíðarguðsþjónusta, annan jóladag 26. desember kl. 14.00 í V-Fröunda kirkju.

Nánar auglýst síðar.

Spekiorð vikunnar:

”Eitt blóm í einu. Ég vil heyra hvað þú segir.”  Robert Francis

”Hugsunin verður aldrei rétt nema friður ríki í eigin hugarheimi.”  Seneca  (4.f Kr.- 65 e Kr.)

”Taktu þér dálítinn tíma, þótt það sé aðeins stundarkorn, í garðinum, á listsýningu, á kaffihúsi. Njóttu þess. Láttu blóm og fugla, myndir, tónlist, bækur og góða vini endurnæra þig.”  Pam Brown

Ljóðahornið

Góðum mönnum gefin var

sú glögga eftirtekt. 

Að finna líka fegurð þar, 

sem flest er hversdagslegt.

Jóhanna Kristjánsdóttir frá Kirkjubóli

Sé takmark þitt hátt, 

þá er alltaf örðug för, 

sé andi þinn styrkur, 

þá léttast stríðsins kjör. 

Sé merkið hreint, 

sem hátt og djarft þú ber, 

snýr hindrun sérhver aftur, 

sem mætir þér.

Jón Trausti

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *