Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju lau. 15. nóvember kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
Annað framundan:
Íslenskur sönghópur fyrir börn í Gautaborg og nágrenni
Við auglýsum eftir söngglöðum börnum sem vilja syngja íslenska söngva!
Við æfum íslensk jólalög í safnaðarheimili V-Frölunda sunnudag 23. nóvember kl. 16.00.
Æskilegur æfingaaldur er 6 til 12 ára börn. Sönghópurinn ætlar svo að koma fram á aðventuhátíð í V-Frölunda kirkju sunnudaginn 7. desember kl. 14, þar sem m. a Biskup Íslands er gestur. Áhugasamir hafi samband við Kristínu Pálsdóttur á Email: kristin@palsdottir.se eða í síma 0702300676.
Jólatónleikar Íslenska kórsins í Gautaborg föstudaginn 28. nóv. kl. 19.00 í Hagakirkjunni. Þema tónleikanna er: „Jul så in i Norden“, fjölbreytt úrval jólalaga á öllum tungumálum Norðurlanda.
Aðventuhátíðin verður í V-Fröunda kirkju sunnudaginn 7 desember kl. 14.00. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands flytur hugvekju. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórstjórn og einsöng annast Daniel Ralphssonar. Barnahópur syngur jólalög undir stjórn Kristínar Pálsdóttur. Hjálmar Lekholm leikur á píanó. Hátíðarkirkjukaffi í safnaðarheimili. Bryndís Malla Elídóttir flytur ávarp og Íslenski kórinn í Gautaborg syngur.
Hátíðarguðsþjónusta, annan jóladag 26. desember kl. 14.00 í V-Fröunda kirkju.
Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Carl Markman leikur á orgel.
Spekiorð vikunnar:
„Þegar ég er, ef svo mætti segja, fyllilega með sjálfum mér, aleinn og í góðu skapi … á slíkum stundum fæðast flestar bestu hugmyndirnar. Wolfgan Amadeus Mozart (1756-1791)
„Sá sem brosir í stað þess að reiðast ber alltaf sigur úr býtum.“ Japönsk speki
„Þegar öllu er á botninn hvolft er líðandi stund hið eina örugga í lífinu.“ Maria Craik (1820-1887)
Með kæri kveðju í skammdeginu, Ágúst