Íslensk fermingarfræðsla í Svíþjóð

Fermingarfræðsla Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð

Íslenska kirkjustarfið í Svíþjóð býður upp á fermingarfræðslu nú sem fyrr. Þátttakendur geta komið af öllu landinu. Við reynum að brúa fjarlægðir með því að hittast á fermingarmótum, boðið er upp á fræðslusamverur og auk þess notum við símtöl og tölvupóst til að vera í tengslum.

Skráning í fermingarfræðslu stendur yfir, vinsamlegast skráið ykkur fyrir 10 september. Áhugasamir eru beðnir að senda póst á kirkjan@telia.com til að fá skráningarblað sent til baka.

Nánar um fermingarfræðsluna, fermingarmót í október

Fermingarundirbúningurinn hefst með fermingarmóti á Åh Stiftgård helgina 2.-4. okt. 2020. Hópurinn hittist á brautarstöðinni í Gautaborg á föstudegi.  Við förum með rútu til Åh stiftgård sem er 70 km fyrir norðan Gautaborg. Komum aftur til Gautaborgar um hádegi á sunnudegi og þaðan taka allir lest eða rútu heim.

Á fermingarmótinu gefst tækifæri til að kynnast og byrja fræðsluna af krafti. Á mótinu samtvinnum við nám, leik og skemmtilega samveru. Við reiknum með um 20 unglingum á mótið og um 8 fullorðnir eru með til að hafa umsjón með hópnum. Oft höfum við haft mun stærri hópa á fermingarmóti, en að þessu sinni eru unglingar frá Noregi og Danmörku ekki með, heldur hittast íslenskir unglingar í hverju landi fyrir sig.

Á Covid-19 tímum er allt gert á AH stiftgård til þess að minnka líkur á smiti. Reglur eru um hópastærð, hreinlæti og fjarlægð milli einstaklinga. 

Fræðsla og kirkjusókn í vetur

Fræðslan heldur áfram eftir fermingarmótið með því að unglingarnir sækja guðsþjónustur í heimabyggð og skila verkefnum með tölvupósti. Fræðslufundir eru í tengslum við íslenskar guðsþjónustur. Einnig er boðið upp á símakennslutíma fyrir þá sem ekki komast í kennslustundir tengdar íslensku helgihaldi.

Fermingarmót í maí 2021

Að vori hittist hópurinn að nýju á sama stað, áætlað vormót er helgina 7 – 9. maí2021.

Fermingardagar

Það er valfrjálst hvort fermingin fari fram í Svíþjóð eða heima á Íslandi. Fermingarguðsþjónustur eru yfirleitt í lok maímánaðar hér Svíþjóð.

Unglingarnir geta fengið leyfi til að fermast fyrr eða í kringum páska 2021 á Íslandi þó fermingarfræðslu sé ekki lokið hér hjá okkur, en skuldbinda sig þá til að koma á seinna fermingarmótið og ljúka kennsluprógramminu.

Skráning stendur yfir

Þeir sem vilja vera með í fermingarfræðslu í vetur þurfa að skrá sig sem fyrst. Vinsamlegast hafið samband á kirkjan@telia.com og biðjið um skráningarblað, einnig er velkomið að leita frekari upplýsinga hjá undirrituðum í síma 070 286 39 69.

Bestu kveðjur, Ágúst Einarsson, prestur Íslendinga í Svíþjóð.

Upphaf vetrarstarfs í Gautaborg

Nú fer hefðbundið vetrarstarf í gang í Gautaborg. Barna- og fjölskyldusamverur eru ráðgerðar hálfsmánaðarlega og guðsþjónustur einu sinni í mánuði. Vegna Covid-19 höldum við fjarlægð og takmörkun á fjölda sem hittist miðast við 50 manns.

Barna- og fjölskyldusamverur eru ráðgerðar kl. 11 á neðri hæð safnaðarheimilis V-Frölundakirkju laugardagana:

12. og 26. september, 10. og 24. október, 14. og 28. nóvember.

Guðsþjónustur verða í safnaðarheimili Västra Frölundakirkju sunnudagana:

27. september og 8. nóvember kl. 14.

Guðsþjónustur á aðventu og jólum verða auglýstar er nær dregur.

Västra Frölunda kirkja er lokuð vegna viðgerða fram í apríl 2021 og þess vegna fara guðsþjónustur fram í safnaðarheimilinu í vetur.

Við bíðum átekta með samkomuhald

Kæru vinir,

Á þessum undarlegu og varhugaverðu tímum höfum við virt leiðbeiningar yfirvalda til að fyrirbyggja frekara smit af völdum coronaveiru. Þess vegna hefur barnastarfi, kórastarfi og guðsþjónustum verið aflýst í apríl og maímánuði. 

Í framhaldi af því munum við áfram fylgja leiðbeiningum yfirvalda hvað varðar samkomur og mannamót.

Við veltum fyrir okkur hvort möguleiki sé á guðsþjónustu í júnímánuði og hvort möguleiki sé á hefðbundnum hátíðahöldum í tengslum við þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Það er óljóst á þessari stundu en nánar auglýst er nær dregur og ef af verður.

Pössum upp á hvert annað og gætum að náunganum. 

Með kærleikskveðju,

Prestur og sóknarnefnd íslensku kirkjunnar í Svíþjóð.

Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se

Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

Sænsk íslensk guðsþjónusta sun. 22 mars kl. 11 í Gautaborg

Kæru vinir

Nú eru erfiðir einangrunartímar hjá okkur en við reynum að lifa sem eðlilegustu lífi með skynsemi og öllum varúðarráðstöfunum. 

Það eru guðsþjónustur haldnar víðast í Svíþjóð og því auglýsum við þennan viðburð um helgina:

Sameiginleg guðsþjónusta íslenska og sænska kirkjustarfsins í Västra Frölundakirkju sun. 22. mars. kl. 11.00. (Athugið tímasetninguna) Guðsþjónustan verður á sænsku og íslensku. Orgelleik annast Lisa Fröberg. Helena Sjöstrand Svenn syngur einsöng. Prestar eru Marianne Fogelqvist og Ágúst Einarsson.

Verið velkomin!

Kirkjukaffi er sleppt að þessu sinni og fyrirlestur sem vera átti er frestað.

Bestu kveðjur, Ágúst

P.S.  Dagskrá íslenska kirkjustarfsins verður auglýst nánar þegar óvissan verður minni í þjóðfélaginu.

Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se

Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

Kirkjustarfið í Gautaborg, dagskrárbreytingar

Umsjónarfólk barnastarfsins ákveðið að fella niður barnasamverurnar í marsmánuði. Þannig að engin barnasamvera verður á morgun lau. 14. mars.

Þetta er vegna tilmæla um að minnka umgengni vegna smithættu og vegna þess að við sjáum fram á forföll hjá þeim sem venjulega sækja samverur barnastarfsins.

 Að öllu óbreyttu er dagskrá kirkjustarfsins framundan þessi:

Sun. 22 mars Guðsþjónusta, sænsk-íslensk, sameiginleg með V Frölundasöfnuði kl. 11.00

Menningardagskrá í kirkjukaffi. 

De isländska släktsagorna“ Joakim Lilljegren, bibliotekarie och nordist, berättar om den nya översättningen och hur den skall presenteras i Göteborg.

Lau. 25 apríl Barnastarf

Sun. 26 apríl Guðsþjónusta kl. 14

8 til 10 maí  Fermingarmót á Ah stiftgard

Sun. 24 maí  Guðsþjónusta kl. 14

Bestu kveðjur, Ágúst

Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se

Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

Barnastarf í Gautaborg lau. 14. mars kl. 11.

Kæru vinir

Barnastarfið verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 14. mars kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. 

Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  

Verið velkomin!

Bestu kveðjur, Ágúst

P.S.  Dagskrá kirkjustarfsins framundan

Sun. 22 mars Guðsþjónusta sameiginleg með V Frölundasöfnuði kl. 11.00

Menningardagskrá í kirkjukaffi. 

De isländska släktsagorna“ Joakim Lilljegren, bibliotekarie och nordist, berättar om den nya översättningen och hur den skall presenteras i Göteborg.

Lau. 28 mars Barnastarf

Lau. 25 apríl Barnastarf

Sun. 26 apríl Guðsþjónusta kl. 14

8 til 10 maí    Fermingarmót á Ah stiftgard

Sun. 24 maí  Guðsþjónusta kl. 14

Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se

Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

Barnastarf á lau. 22/2 og guðsþjónusta á sun. 23/2 í Gautaborg

Barnastarfið verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 22. febrúar kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  

Verið velkomin!

Verið einnig velkomin í íslenska guðsþjónustu í Gautaborg sem verður í Västra Frölundakirkju sunnudaginn 23. febrúar kl. 14.00  Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kórstjórn annast Lisa Fröberg. Elísabet Einarsdóttir syngur einsöng. Prestur er Ágúst Einarsson. Barnastund, smábarnahorn. 

Kirkjukaffi, kaffi og spjall, eftir guðsþjónustu.

Aðalsafnaðarfundur er í kirkjukaffi. Venjuleg aðalfundarstörf.

Bestu kveðjur, Ágúst

P.S.

Dagskrá kirkjustarfsins framundan

Lau. 14 mars Barnastarf

Sun. 22 mars Guðsþjónusta með V Frölundasöfnuði kl. 11.00

Menningardagskrá í kirkjukaffi. Nánar auglýst síðar. 

Lau. 28 mars Barnastarf

Lau. 4 apríl   Barnastarf

Lau. 25 apríl Barnastarf

Sun. 26 apríl Guðsþjónusta kl. 14

8 til 10 maí    Fermingarmót á Ah stiftgard

Sun. 24 maí  Guðsþjónusta kl. 14

Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se

Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

Barnastarfið í kirkjunni lau. 1. febr. kl. 11.

Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 1. febrúar kl. 11. 

Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. 

Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  

Verið velkomin!

Bestu kveðjur, Ágúst

P.S.          Guðsþjónustur, kirkjuskólar, dagskrá kirkjustarfsins framundan

Lau. 22 febr. Kirkjuskóli

Sun. 23 febr. Guðsþjónusta kl. 14

Elísabet Einarsdóttir syngur einsöng. 

Aðalfundur safnaðarins í kirkjukaffi

Lau. 14 mars Kirkjuskóli

Sun. 22 mars Guðsþjónusta með V Frölundasöfnuði kl. 11.00

Menningardagskrá í kirkjukaffi. Nánar auglýst síðar. 

Lau. 28 mars Kirkjuskóli

Lau. 4 apríl   Kirkjuskóli

Lau. 25 apríl Kirkjuskóli

Sun. 26 apríl Guðsþjónusta kl. 14

Menningardagskrá í kirkjukaffi.  Nánar auglýst síðar. 

8 til 10 maí    Fermingarmót á Ah stiftgard

Sun. 24 maí  Guðsþjónusta, ferming kl. 14

Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se

Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

Íslensk guðsþjónusta í Gautaborg sunnudag 26 janúar kl. 14

Verið velkomin í fyrstu íslensku guðsþjónustuna í Gautaborg á nýju ári sem verður í Västra Frölundakirkju sunnudaginn 26. janúar kl. 14.00 

Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kórstjórn annast Lisa Fröberg.

Prestur er Ágúst Einarsson. Barnastund, smábarnahorn. 

Kirkjukaffi, kaffi og spjall, eftir guðsþjónustu. 

Guðsþjónustur, kirkjuskólar, dagskrá kirkjustarfsins framundan

Lau. 1 febr.   Kirkjuskóli

Lau. 22 febr. Kirkjuskóli

Sun. 23 febr. Guðsþjónusta kl. 14

Elísabet Einarsdóttir syngur einsöng. 

Aðalfundur safnaðarins í kirkjukaffi

Lau. 14 mars Kirkjuskóli

Sun. 22 mars Guðsþjónusta með V Frölundasöfnuði kl. 11.00

Menningardagskrá í kirkjukaffi. Nánar auglýst síðar. 

Lau. 28 mars Kirkjuskóli

Lau. 4 apríl   Kirkjuskóli

Lau. 25 apríl Kirkjuskóli

Sun. 26 apríl Guðsþjónusta kl. 14

Menningardagskrá í kirkjukaffi.  Nánar auglýst síðar. 

8 til 10 maí    Fermingarmót á Ah stiftgard

Sun. 24 maí  Guðsþjónusta, ferming kl. 14

Barnastarf hefst lau 18 jan kl. 11.

Sæl verið þið.

Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 18. janúar kl. 11.00. 

Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.

Börnin fá bók sem heitir: ”Kærleiksbókin mín”.

Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin!

Bestu kveðjur, Ágúst

P.S.

Guðsþjónustur, kirkjuskólar, dagskrá kirkjustarfsins framundan

Lau. 18 jan.   Kirkjuskóli

Sun. 26 jan.   Guðsþjónusta kl. 14

Lau. 1 febr.   Kirkjuskóli

Lau. 22 febr. Kirkjuskóli

Sun. 23 febr. Guðsþjónusta kl. 14

Elísabet Einarsdóttir syngur einsöng.

Aðalfundur safnaðarins í kirkjukaffi

Lau. 14 mars Kirkjuskóli

Lau. 28 mars Kirkjuskóli

Sun. 22 mars Guðsþjónusta með V Frölunda kl. 11.00