Barnastarf lau. 24. jan kl. 11. í Gautaborg og starfið framundan

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 24. janúar kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin! 

Dagskrá kirkjustarfins framundan:

1. febrúar sunnudag, guðsþjónusta kl. 14

21. febrúar, laugardag barnasamvera kl. 11

7. mars, laugardag barnasamvera kl. 11

8. mars sunnudag, guðsþjónusta kl. 14

21. mars, laugardag barnasamvera kl. 11

6. apríl mánudag 2 í páskum, guðsþjónusta kl. 14

11. apríl, laugardag barnasamvera kl. 11

24. maí sunnudag, guðsþjónusta kl. 14

Íslenskt barnastarf í Stokkhólmi

Gleðilegt nýtt ár!

Barna- og fjölskyldusamvera verður í Norsku kirkjunni (Stigbergsgatan 24) sunnudaginn 11. janúar kl. 14.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Umsjón hafa Ágúst Einarsson prestur og Bryndís Ásta Magnúsdóttir kórstjóri.

Verið velkomin! 

Staðsetningin er nálægt Slussen, 18 mínútna ganga þaðan til:

Norska Sjømannskirken, Kronprinsesse Märthas Kirke

Stigbergsgatan 24, 116 28 Stockholm

Jólaball þriðjudag 6. jan. kl. 14 í Gautaborg

Sæl öll og gleðilegt nýtt ár!

Jólaskemmtun barnanna verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju á þrettándanum þriðjudaginn 6. jan. kl 14.00.  Guðni og Guðbjörg leiða söng og Júlíus leikur á píanóið. Dansað í kringum jólatréð, íslensku jólalögin sungin og hressir jólasveinar koma í heimsókn.

Pálínuboð – þátttakendur koma með veitingar á sameiginlegt borð. 

Kaffi og safi á staðnum. Aðstöðugjald er 80 kr á fjölskyldu, swishnr. 1235724562

Verið velkomin!

Nefndin.

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

Spaka hornið:

”Þegar einhver er of þreyttur til að gefa þér bros, gefðu þá eitt af þínum.” Ók

”Að geta fundið gleði í gleði annarra; það er leyndardómur hamingjunnar.” Georges Bernanos

”Andartakið eigum við öll jafnt.” Markús Árelíus (121-180 e. Kr.)

Íslensk jólahelgistund á Þorláksmessu í Lundi

Jólahelgistund verður í Maria Magdalena kirkjunni í Lundi (Flygelvägen 1, Lund) á Þorláksmessu þriðjudag 23. des. kl. 17.00

Við hugleiðum boðskap jólahátíðar í tali og tónum á helgistund með allri fjölskyldunni.  Íslenski kórinn í Lundi syngur undir stjórn Halldórs Karvel Bjarnasonar, sem einnig leikur á gítar. Hildur Ylfa og Katrín Una Jónsdætur leika á víólur. Umsjón Ágúst Einarsson

Verið velkomin!

Heimsókn biskups Íslands Guðrúnar Karls Helgudóttur til Gautaborgar. Aðventuhátíð.

Nú gefst okkur tækifæri til að hitta biskup Íslands, Guðrúnu Karls Helgudóttur, því hún kemur í heimsókn til okkar hér í Gautaborg um næstu helgi.

Aðventuhátíð í V-Fröunda kirkju sunnudaginn 7. desember kl. 14.00. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands flytur hugvekju. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórstjórn og einsöng annast Daniel Ralphssonar. Barnahópur syngur jólalög undir stjórn Kristínar Pálsdóttur. Hjálmar Lekholm leikur á píanó. 

Hátíðarkirkjukaffi í safnaðarheimili. Bryndís Malla Elídóttir, prófastur, flytur ávarp og Íslenski kórinn í Gautaborg syngur.

Annað framundan:

Julsång i City í Dómkirkjunni

Íslenski kórinn tekur þátt og syngur þriðjudaginn 16. desember kl. 17.30. Nauðsynlegt að mæta tímanlega.

Hátíðarguðsþjónusta, annan jóladag 26. desember kl. 14.00 í V-Fröunda kirkju.

Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Carl Markman leikur á orgel. Sólveig Lea Jóhannsdóttir syngur einsöng við undirleik Axels Olsson  Kirkjukaffi.

Með kærri kveðju með ánægjulega aðventu, Ágúst

Barnasamvera lau. 15. nóv. kl. 11 og dagskráin framundan

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju lau. 15. nóvember kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin! 

Annað framundan:

Íslenskur sönghópur fyrir börn í Gautaborg og nágrenni

Við auglýsum eftir söngglöðum börnum sem vilja syngja íslenska söngva!

Við æfum íslensk jólalög í safnaðarheimili V-Frölunda sunnudag 23. nóvember kl. 16.00.

Æskilegur æfingaaldur er 6 til 12 ára börn. Sönghópurinn ætlar svo að koma fram á aðventuhátíð í V-Frölunda kirkju sunnudaginn 7. desember kl. 14, þar sem m. a Biskup Íslands er gestur. Áhugasamir hafi samband við Kristínu Pálsdóttur á Email: kristin@palsdottir.se eða í síma 0702300676.

Jólatónleikar Íslenska kórsins í Gautaborg föstudaginn 28. nóv. kl. 19.00 í Hagakirkjunni.  Þema tónleikanna er: „Jul så in i Norden“, fjölbreytt úrval jólalaga á öllum tungumálum Norðurlanda.

Aðventuhátíðin verður í V-Fröunda kirkju sunnudaginn 7 desember kl. 14.00. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands flytur hugvekju. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórstjórn og einsöng annast Daniel Ralphssonar. Barnahópur syngur jólalög undir stjórn Kristínar Pálsdóttur. Hjálmar Lekholm leikur á píanó. Hátíðarkirkjukaffi í safnaðarheimili. Bryndís Malla Elídóttir flytur ávarp og Íslenski kórinn í Gautaborg syngur.

Hátíðarguðsþjónusta, annan jóladag 26. desember kl. 14.00 í V-Fröunda kirkju.

Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Carl Markman leikur á orgel.

Spekiorð vikunnar:

„Þegar ég er, ef svo mætti segja, fyllilega með sjálfum mér, aleinn og í góðu skapi … á slíkum stundum fæðast flestar bestu hugmyndirnar.  Wolfgan Amadeus Mozart (1756-1791)

„Sá sem brosir í stað þess að reiðast ber alltaf sigur úr býtum.“  Japönsk speki

„Þegar öllu er á botninn hvolft er líðandi stund hið eina örugga í lífinu.“ Maria Craik (1820-1887)

Með kæri kveðju í skammdeginu, Ágúst

Guðsþjónusta á sunnudag 19. okt. kl. 11.00, barnasönghópur og fl framundan

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 19 október í Þýsku kirkjunni (við Brunnsparken) kl. 11.00(athugið tímasetninguna) með öðrum erlendum söfnuðum í Gautaborg. Ólík tungumál kristallast í þessari guðsþjónustu. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Kórinn flytur: „Heyr himna smiður“ e. Kolbein Tumason/Þorkel Sigurbjörnsson og Smávinir fagrir e. Jón Nordal/Jónas Hallgrímsson. Altarisganga. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu m.a. íslenskar kleinur.

Verið velkomin

Annað framundan:

Íslenskur sönghópur fyrir börn í Gautaborg og nágrenni

Við auglýsum eftir söngglöðum börnum sem vilja syngja íslenska söngva!

Við æfum íslensk jólalög í safnaðarheimili V-Frölunda og finnum góðan æfingatíma.

Æskilegur æfingaaldur er 6 til 12 ára börn. Sönghópurinn ætlar svo að koma fram á aðventuhátíð í V-Frölunda kirkju sunnudaginn 7. desember kl. 14, þar sem m. a Biskup Íslands er gestur. Áhugasamir hafi samband við Kristínu Pálsdóttur á Email: kristin@palsdottir.se eða í síma 0702300676.

Jólatónleikar Íslenska kórsins í Gautaborg föstudaginn 28. nóv. kl. 19.00

Þema tónleikanna er: „Jul så in i Norden“, fjölbreytt úrval jólalaga á öllum tungumálum Norðurlanda. Nánar auglýst síðar.

Aðventuhátíð íslenska kirkjustarfsins verður í V-Fröunda kirkju sunnudaginn 7 desember kl. 14.00.Fjölbreytt aðventudagskrá. M.a. syngur Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Meðal gesta er Guðrún Karls Helgudóttir, Biskup Íslands. Nánar auglýst síðar.

Hátíðarguðsþjónusta, annan jóladag 26. desember kl. 14.00 í V-Fröunda kirkju.

Nánar auglýst síðar.

Spekiorð vikunnar:

”Eitt blóm í einu. Ég vil heyra hvað þú segir.”  Robert Francis

”Hugsunin verður aldrei rétt nema friður ríki í eigin hugarheimi.”  Seneca  (4.f Kr.- 65 e Kr.)

”Taktu þér dálítinn tíma, þótt það sé aðeins stundarkorn, í garðinum, á listsýningu, á kaffihúsi. Njóttu þess. Láttu blóm og fugla, myndir, tónlist, bækur og góða vini endurnæra þig.”  Pam Brown

Ljóðahornið

Góðum mönnum gefin var

sú glögga eftirtekt. 

Að finna líka fegurð þar, 

sem flest er hversdagslegt.

Jóhanna Kristjánsdóttir frá Kirkjubóli

Sé takmark þitt hátt, 

þá er alltaf örðug för, 

sé andi þinn styrkur, 

þá léttast stríðsins kjör. 

Sé merkið hreint, 

sem hátt og djarft þú ber, 

snýr hindrun sérhver aftur, 

sem mætir þér.

Jón Trausti

Velkomin í íslenskt barnastarf lau. 11. okt. kl. 11 í Gautaborg

Sæl og blessuð! 

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju lau. 11. október kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin! 

Bestu kveðjur, Ágúst

P.S. Við byrjuðum vetrarstarfið fyrir 2 vikum með fjölskylduguðsþjónustu og bókafundi fyrir börn. Núna á laugardaginn er fyrsta hefðbundna barnasamveran og í framhaldi ákveðum við samverur eftir aðsókn og óskum þeirra sem vilja taka þátt.

Speki í dagsins önn:

”Tíminn er í raun eini höfuðstóllinn sem menn eiga og það eina sem við höfum ekki ráð á að missa.” Thomas Edison (1847-1931)

”Gerðu það sem þú getur, með því sem þú hefur, þar sem þú ert.” Theodore Roosevelt (1858-1919)

”Hamingjan er ekki háð ríkidæmi eða frægð. Hvernig þú horfir á fólk, brosir, gerir náunganum greiða, getur stuðlað að hamingju.” Thich Nhat Hanh

Fjölskylduguðsþjónusta og barnabókasamvera á sunnudag kl. 14 og 15.30

Íslensk fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 28. sept. í Västra Frölunda kirkju kl. 14.00. Guðsþjónustan verður aðlöguð þátttöku bæði barna og fullorðinna. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Kórinn flytur: ”Drottinn, gerðu hljótt í hjarta mínu” (Lag eftir Andrew Lloyd Webber) og ”Stad í ljus” (Lag eftir: Py Bäckman) Píanóleik og kórstjórn annast Daniel Ralphsson. Prestur er Ágúst Einarsson. 

Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu.

Barnabókasamvera verður kl. 15.30 í safnaðarheimilinu (í Västra Frölunda).

Yrsa Sigurðardóttir barnabókarithöfundur kemur í heimsókn og kynnir bækur sínar. Börn og fullorðnir eru velkomin til að hlusta á hana segja frá. Einnig er hægt að kaupa íslenskar bækur.

Verið velkomin á þessa viðburði!

Bestu kveðjur, Ágúst

P.S.  Speki í dagsins önn:

„Líf er fyrsta gjöfin, ástin er önnur, og skilningur sú þriðja.“ (Marge Piercy)

„Þrennt það mikilvægasta sem stuðlar að hamingju í lífinu: eitthvað að gera, einhver að elska og eitthvað að vonast eftir. (Joseph Addison 1672-1719)

„Maður á aldrei að leita að hamingju, maður hittir hana á leiðinni. (Isabelle Eberhardt 1877-1904)