Sæl öll.
Nú er safnaðarstarfið að hefjast á nýju misseri og fyrst á dagskrá:
Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 8. september kl. 11.00.
Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Börnin fá bók og mynd til að líma inn í hvert skipti sem komið er.
Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
Fermingarfræðsla
Skráning í fermingarfræðslu vetrarins stendur yfir. Fermingarmótið er 12 til 14 október á ÅH stiftgård. Skráningarfrestur er til 10 september. Sjá nánar á: http://www.kirkjan.se/?page_id=127
Kirkjustarfið framundan:
Lau. 22 sept. Kirkjuskóli
Sun. 30 sept. Guðsþjónusta
Lau. 6 okt. Kirkjuskóli
12 til 14 okt. Fermingarmót á Ah stiftgard
Lau. 20 okt. Kirkjuskóli
Sun. 21 okt. Guðsþjónusta erl safnaða kl. 11 í þýsku kirkjunni
Lau. 10 nóv. Kirkjuskóli
Sun. 11 nóv. Guðsþjónusta
Lau. 24 nóv. Kirkjuskóli
Sun. 2 des.Aðventuhátíð
Þri. 25 des.Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta
Sun. 6 jan 2019 Jólaball kl. 14