Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 22. september kl. 11.00.
Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Börnin fá bók og mynd til að líma inn í hvert skipti sem komið er.
Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
Fermingarfræðsla
Skráning í fermingarfræðslu vetrarins stendur yfir. Fermingarmótið er 12 til 14 október á ÅH stiftgård. Sjá nánar á: http://www.kirkjan.se/?page_id=127
Kirkjustarfið framundan:
Sun. 30 sept. Guðsþjónusta, Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Lisu Fröberg. Elísabet Einarsdóttir syngur einsöng.
Lau. 6 okt. Kirkjuskóli
12 til 14 okt. Fermingarmót á Ah stiftgard
Lau. 20 okt. Kirkjuskóli
Sun. 21 okt. Guðsþjónusta erl safnaða kl. 11 í þýsku kirkjunni
Lau. 10 nóv. Kirkjuskóli
Sun. 11 nóv. Guðsþjónusta
Lau. 24 nóv. Kirkjuskóli
Sun. 2 des.Aðventuhátíð
Þri. 25 des.Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta
Sun. 6 jan 2019 Jólaball kl. 14
Bestu kveðjur, Ágúst
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum til kirkjan@telia.com
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.