Barnastarf um helgina og aðventuhátíð nálgast

Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 12. nóvember kl. 11.00

Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. 

Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.  

Verið velkomin!

Aðventuhátíð verður í V-Frölundakirkju á 1 í aðventu sunnudaginn 27. nóvember kl. 14.00

Fjölbreytt aðventudagskrá, Íslenski kórinn í Gautaborg syngur aðventu- og jólalög. Barnahópur úr íslenskukennslunni syngur jólalög. 

Heimsókn góðra gesta og dagskrá í kirkjukaffi. Nánar auglýst síðar.

Íslenski kórinn í Gautaborg æfir alla mánudaga kl. 18.30 í safnaðarheimili V-Frölundakirkju. 

Áhugasamir hafi samband við Ingibjörgu Gísladóttur s. 070 563 86 05.

Spaka hornið:

  1. „Lítið hús rúmar jafn mikla hamingju og stórt hús.“ Ók. höf.
  2. „Misstu aldrei tækifærið til að sjá eitthvað sem er fallegt… taktu á móti fegurðinni í hverju fögru andliti, í hverjum heiðum himni, í hverju blómi.“  Ralph Waldo Emerson (1803-1882)
  3. „Ef þú ert opin/nn og brosandi taka allir aðrir upp á því sama. Ainsley Harriott
  4. „Ást, vinátta og örlæti – einu hráefnin sem þarf í hamingjuríkt líf.“ Stuart & Linda Macfarlane

Bestu kveðjur, Ágúst

Ágúst Einarsson er prestur Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð (ÍKS).  Verið velkomin að hafa samband við prestinn í síma: 070 286 39 69. 

Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com

Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.

Heimasíða: www.kirkjan.se

Styrkir sem íslenska kirkjustarfið hefur notið hafa minnkað verulega. Þess vegna leitum við til ykkar sem njótið aðstöðu og þjónustu. 

Styrktarframlög eru vel þegin inn á söfnunarreikning íslenska kirkjustarfsins swishnúmer: 123 572 45 62. Margt lítið gerir eitt stórt.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *