Sæl verið þið!
Nú byrjum við haustdagskránna í safnaðarstarfinu næstkomandi laugardag.
Barna- og fjölskyldusamvera í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 17. september kl. 11.00
Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.
Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
Íslensk guðsþjónusta í Västra Frölunda kirkju sunnudaginn 25. sept. kl. 14.00
Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Nánar auglýst síðar.
Íslenski kórinn í Gautaborg æfir alla mánudaga kl. 18.30 í safnaðarheimili V-Frölundakirkju. Áhugasamir hafi samband við Ingibjörg Gísladóttur s. 070 563 86 05.
Bestu kveðjur, Ágúst