Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju lau. 11. nóv. kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn. Verið velkomin!
Barnasöngstund með Kristínu Pálsdóttur á sama stað lau. 11. nóv. kl. 12.00. Jólalög sungin og æfð fyrir aðventuhátíð, farið í leiki og fleira.
Fræðslustund með unglingum í fermingarfræðslu verður í safnaðarheimilinu efri hæð, lau. 11. nóv. 13.00
Bestu kveðjur, Ágúst