Bókasamvera fyrir börn og fullorðna – Ævar Þór Benediktsson barnabókarithöfundur kemur í heimsókn
Kæru landar í Gautaborg og nágrenni. Föstudaginn 29. september kemur Ævar Þór Benediktsson í heimsókn og býður öllum börnum og foreldrum að koma og hlusta þegar hann les úr bókum sínum og segir frá starfi sínu. Staðurinn er Oddfellow húsið á Vasagatan 9 Gautaborg, kl. 17.00
Húsið opnar 16.45 og mikilvægt að koma tímanlega. Það er ókeypis aðgangur, möguleiki að kaupa bækur og dagskráin tekur rúma klukkustund.
Ævar Þór er hér í sambandi við bókaþingið og gefur okkur tækifæri til að hlusta á upplestur og til samtals. Bókasamveran er í samvinnu við Sendiráð Íslands og við þökkum kærlega fyrir þann styrk.
Ég hlakka til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin.
Ég óska þess að þið sem hafið áhuga á að koma sendið skilaboð um fjölda á netfangið: kristin@palsdottir.se
Bestu kveðjur, Kristín Pálsdóttir