Kæru vinir
Ánægjulegt að geta hist á ný!
Verið velkomin í íslenska guðsþjónustu í Gautaborg
sem verður í Västra Frölunda kirkju sunnudaginn 12. sept. kl. 14.00.
Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Herbjörn Þórðarson syngur einsöng.
Orgel og kórstjórn annast Lisa Fröberg. Prestur er Ágúst Einarsson.
Kirkjukaffi, kaffi og spjall eftir guðsþjónustu í safnaðarheimili.
Vetrarstarfið í Västra Frölunda kirkju í Gautaborg.
Hér er yfirlit starfseminnar framundan:
Barnasamverur, guðsþjónustur og fermingarstarf:
Sun. 12. sept. Guðsþjónusta kl. 14
Lau. 25. sept. kl. 11.00 Barna- og fjölskyldusamvera á neðri hæð safnaðarheimilis.
1 til 3. okt Fermingarmót á Ah stiftgard
(-nýr fermingarhópur þennan vetur)
Lau. 9. okt. Barnastarf kl. 11.
Sun. 17. okt. Guðsþjónusta kl. 14.
Lau. 23. okt. Barnastarf kl. 11.
Lau. 13. nóv. Barnastarf kl. 11.
Fræðslukvöld ráðgert í nóvember, nánar auglýst síðar.
Lau. 27. nóv. Barnastarf kl. 11.
Sun. 28. nóv. Aðventuhátíð kl. 14.
Jóladag 25. des. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Íslenski kórinn í Gautaborg æfir alla mánudaga kl. 18.30 í safnaðarheimili V-Frölundakirkju. Áhugasamir mega hafa samband við Kristínu Pálsdóttur s.0702300676.
Utankjörstaðakosning vegna Alþingiskosninga
verður í safnaðarheimili V-Frölunda þessa daga:
Mánudag 13. sept. kl.15 – 18.
Miðvikudag 15. sept. kl.16 – 19.
Christina Nilroth, ræðismaður, hefur umjón með kosningunni.
Takið með skilríki og gefið upp síðasta lögheimili á Íslandi.
Bestu kveðjur, Ágúst