Sæl verið þið.
Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 18. janúar kl. 11.00.
Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.
Börnin fá bók sem heitir: ”Kærleiksbókin mín”.
Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
Bestu kveðjur, Ágúst
P.S.
Guðsþjónustur, kirkjuskólar, dagskrá kirkjustarfsins framundan
Lau. 18 jan. Kirkjuskóli
Sun. 26 jan. Guðsþjónusta kl. 14
Lau. 1 febr. Kirkjuskóli
Lau. 22 febr. Kirkjuskóli
Sun. 23 febr. Guðsþjónusta kl. 14
Elísabet Einarsdóttir syngur einsöng.
Aðalfundur safnaðarins í kirkjukaffi
Lau. 14 mars Kirkjuskóli
Lau. 28 mars Kirkjuskóli
Sun. 22 mars Guðsþjónusta með V Frölunda kl. 11.00
Menningardagskrá í kirkjukaffi. Nánar auglýst síðar.
Lau. 4 apríl Kirkjuskóli
Lau. 25 apríl Kirkjuskóli
Sun. 26 apríl Guðsþjónusta kl. 14
Menningardagskrá í kirkjukaffi. Nánar auglýst síðar.
8 til 10 maí Fermingarmót á Ah stiftgard
Sun. 24 maí Guðsþjónusta, ferming kl. 14
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum á kirkjan@telia.com
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.