Íslensk guðsþjónusta verður í Västra Frölundakirkju
sunnudaginn 21. janúar kl. 14.00.
Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kórstjórn Lisa Fröberg.
Altarisganga. Prestur er Ágúst Einarsson.
Barnastund, smábarnahorn.
Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu
Viltu vera með í sóknarnefnd?
Kosið verður í sóknarnefnd á aðalfundi kirkjustarfsins eftir messu sun. 25. febr. n.k. Við óskum eftir samstarfsfólki sem vill vinna með okkur. Yfir vetrartímann hittumst við mánaðarlega til að ræða málin og skipuleggja starfsemina. Á fundum nefndarinnar er ljúffeng súpa og brauð á boðstólnum og margvísleg mál rædd í góðum hópi. Við viljum efla menningarlega starfsemi meðal Íslendinga og fögnum liðsauka í nefndina. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Ágúst prest s. 0702863969 eða Birnu formann s. 0702453717
Dagskráin framundan:
Kaffi og spjall samvera verður miðvikudaginn 28 febrúar kl. 14
í safnaðarheimili V-Frölunda kirkju. Við hittumst og á dagskrá er ”kaffi og spjall”. Umsjón hefur Guðný Ása Sveinsdóttir (gudny.sveinsdottir@bredband2.com eða sími 070 798 04 36)
Ef þú átt lausa stund og vilt hitta aðra Íslendinga er upplagt að koma á þessa samverustund.
Verið velkomin!
Barnastarfið
Lau. 27 jan kl. 11 Kirkjuskóli
Lau. 3 febr. kl. 11 Kirkjuskóli
Lau. 24 febr. kl. 11 Kirkjuskóli
Lau. 10 mars kl. 11 Kirkjuskóli
Lau. 24 mars kl. 11 Kirkjuskóli
Lau. 14 apríl kl. 11 Kirkjuskóli
Lau. 28 apríl kl. 11 Kirkjuskóli
Guðsþjónustur
Sun 25 febr. kl. 14. Guðsþjónusta, aðalfundur
Sun 25 mars kl. 11. Guðsþjónusta, sameiginleg með V Frölunda söfnuði
Sun 22 apríl kl. 14. Guðsþjónusta, sendiherra Íslands í heimsókn
Sun 20 maí kl. 14. Guðsþjónusta, ferming, hvítasunnudagur
Sun. 17. júní Útihátíð í Västra Frölunda kl. 14.
Bestu kveðjur, Ágúst
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum.
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.