Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 4. febúar kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Öll börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall. Gengið inn að neðanverðu, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.
Verið velkomin!
# Barnastarfið verður einnig laugardagana: 4 febr // 4 mars // 18 mars // 1 apríl // 22 apríl
# Íslenskar guðsþjónustur framundan:
Sun. 26 febrúar kl. 14. Aðalfundur eftir guðsþjónustu
Sun. 26 mars kl. 11 Boðunardagur Maríu
Ath. tíma, sameiginleg með V Frölunda söfnuði
Sun. 23 apríl kl. 14
Sun. 21 maí kl. 14. Ferming. Altarisganga.
Bestu kveðjur, Ágúst
Speki:
Maður nokkur (Tagore) sagði:
“Ég svaf og mig dreymdi að lífið væri gleði.
Ég vaknaði og sá að lífið er skylda.
Svo hófst ég handa og sjá – skyldan var gleði.
Viðtalstími prests á skrifstofu mán., þri., og fim. kl. 10 til 12 og eftir samkomulagi. Sími 070 286 39 69. www.kirkjan.se
Þetta bréf er sent á netfangaskrá ÍKS í Gautaborg. Vinsamlega látið vita um breytingar á búsetu og netföngum.
Starfsmiðstöð: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 42147 V Frölunda.