Barnastarf í Gautaborg laugardag 7. nóvember kl. 11

Barna- og fjölskyldusamvera verður í safnaðarheimili V-Frölundakirkju laugardaginn 7. nóvember kl. 11.00. Söngur, fræðsla, leikur, brúðuleikhús og góð samvera yngri sem eldri. Börn ásamt foreldrum innilega velkomin. Hressing, kaffi og spjall.  Gengið inn í safnaðarheimilið bakatil, skiltið „barn och ungdom“ vísar á innganginn.

Verið velkomin!

Frá kl. 12 er einnig fermingarfræðsla og sönghópur barna hittist til að æfa aðventusöng.

Þetta er framundan í félagsstarfinu:

Barna- og fjölskyldusamvera lau. 21 nóv. kl. 11.00

Aðventutónleikar Íslenska kórsins í Gautaborg föst. 27 nóv. í Þýsku kirkjunni. Nánar auglýst síðar.

Aðventuhátíð í V-Frölunda sun 13. des kl. 14. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Daniels Ralphssonar. Barnasönghópur syngur undir stjórn Kristínar Pálsdóttur. Nýr íslenskur sendiherra Íslands í Svíþjóð; Elín Rósa Sigurðardóttir, heimsækir okkur. Nánar auglýst síðar.

Jólahátíðarguðsþjónusta 2 jóladag 26. des kl. 14 í V-Frölunda. Íslenski kórinn í Gautaborg leiðir söng. Lisa Fröberg leikur á orgel. Nánar auglýst síðar.

Jólaball er ráðgert kl. 14. á þrettándanum 6. jan. 2027. Nánar auglýst síðar.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *